Eftir sólríkt og skemmtilegt hjólasumar er komið að lokaferð þriðjudagsferða Íslenska fjallahjólaklúbbsins. Frá því um miðjan maí hafa vaskir reiðhjólaunnendur safnast saman við Mjóddina kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum og hjólað saman um borgina. Ferðirnar hafa teygt sig víða; fuglaskoðun í Grafarvoginum, Gróttuviti heimsóttur, kaffihúsaferð á Hressó, hjólað í kringum Rauðavatn, Heiðmerkurhringur, Elliðavatn, í Hafnafjörð og víðar.

Frá fyrstu ferð vorsins var ljóst að hjólamönnum fjölgar ört í borginni. Hópurinn hefur að meðaltali verið 40 - 60% stærri í ferðum sumarsins en á undanförnum árum. Samhliða ferðunum hafa þátttakendur safnað ferðum og í lokaferðinni verður einmitt afhentur mætingabikar sumarsins. Annars vegar farandbikar og hins vegar annar minni til eignar. Þess má geta að ein manneskja hefur eignast farandbikarinn fyrir að vera með bestu mætinguna í þriðjudagskvöldferðirnar í 3 ár; það var hin knáa Sóley Bjarnadóttir sem það gerði fyrir tveimur árum, þá 12 ára gömul.

Ferðin á þriðjudaginn hefst við Mjóddina, þar sem strætó stoppar, kl. 20 og hjólað verður þaðan sem leið liggur í GÁP í Mörkinni. Þar verður lokahátíð þriðjudagsferðanna, verðlaunaafhending og léttar veitingar.
Ferðin er opin öllum hjólamönnum og ætti að vera lokið fyrir kl. 22.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Helgason í s. 8494245 eða Sesselja Traustadóttir í s. 864 2776

Birt:
22. ágúst 2008
Tilvitnun:
Íslenski fjallahjólaklúbburinn „Íslenski fjallahjólaklúbburinn vex og vex“, Náttúran.is: 22. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/08/22/islenski-fjallahjolaklubburinn/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 23. ágúst 2008

Skilaboð: