Dalai Lama á Íslandi
Hans heilagleiki 14. Dalai Lama, Tenzin Gyatso, handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta, mun dvelja á Íslandi dagana 1.-3. júní. Þetta er í fyrsta sinn sem Dalai Lama heimsækir Ísland en hann hefur heimsótt fjölda landa undanfarin 50 ár, ýmist sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila.
Meðan á dvöl hans stendur mun Dalai Lama halda fyrirlestur þar sem hann fjallar um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju ásamt því að svara fyrirspurnum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Laugardalshöll þann 2. júní kl. 15:00.
Dalai Lama er þekktur um allan heim fyrir að hafa aldrei hvikað frá þeirri stefnu að leita friðsamlegra lausna í málefnum Tíbets. Hann hefur verið óþreytandi baráttumaður og málsvari þjóðar sinnar frá því að hann flúði landið sitt árið 1959. Upp frá því hefur hann haft aðsetur í Indlandi og stýrt þaðan ríkisstjórn sinni í útlegð.
Þessi merki friðarleiðtogi er nú 73 ára gamall og gefst því landsmönnum einstakt tækifæri til að hlýða á þennan merka mann sem vakið hefur athygli og aðdáun um heim allan, á meðan hann er enn við góða heilsu.
Félagið Dalai Lama á Íslandi stendur fyrir heimsókninni og hefur séð um allan undirbúning hennar.
ATH að fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Dalai Lama á Íslandi“, Náttúran.is: 1. júní 2009 URL: http://nature.is/d/2009/06/01/dalai-lama-islandi/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.