Green Globe (græni hnötturinn) er viðmiðunar- og vottunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærri ferðaþjónustu. Það er byggt á Dagskrá 21 og gefur fyrirtækjum og samfélögum tækifæri á að vinna á markvissan hátt að umhverfismálum. Green Globe leggur áherslu á þá meginý ætti tengda umhverfinu, félags- og efnahagsmálum sem hafa mest áhrifa á umhverfið.
Fyrirtæki í ferðaþjónusta og samfélög innan Green Globe eru afð finna um allan heim og í helstu greinum innan ferðaþjónustunnar.

Green Globe Affiliate er merki þeirra fyrirtækja og samfélaga sem eru með félagsaðild, hafa sett sér umhverfisstefnu og hafið undirbúning að mælingum viðmiða og svo að vottun. Hætt var að nota þetta merki 2008.
Sjá alþjóðlegan vef Green Globe
. Sjá vef Ferðaskrifstofu bænda.

Birt:
2. mars 2008
Tilvitnun:
Berglind Viktorsdóttir „Green Globe Affiliate“, Náttúran.is: 2. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2007/05/11/green-globe-affiliate/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. maí 2007
breytt: 13. nóvember 2008

Skilaboð: