Hvers vegna endurhlaðanlegar rafhlöður?
Það eru margar ástæður fyrir því að velja endurhlaðanlegar rafhlöður:
- Á móti hverri einni endurhlaðanlegri rafhlöðu þarf a.m.k. eittþúsund einnota, bæði vegna þess að það er hægt að hlaða margnota rafhlöður a.m.k 500 sinnum og þar að auki endast þær í hverri hleðslu allt að fjórum sinnum lengur en einnota.
- Mikill sparnaður. Meðal heimili notar gífurlegt magn af AA og AAA rafhlöðum á hverju ári auk fyrirtækja og stofnana. Það er ekki óalgengt að ein margnota rafhlaða kosti ca. tíu sinnum meira en einnota, en hún endist líka a.m.k. þúsund sinnum lengur.
- Endurhlaðanlegar rafhlöður nota innlenda orkugjafa í stað erlendra.
- Endurhlaðanlegar rafhlöður minnka stórlega hættuna á að þungmálmar komist í umhverfið þar sem þeir valda gífurlegu tjóni. Sjá viðmið Náttúrunnar um þungmálma.
Franska fyrirtækið Uniross er leiðandi fyrirtæki á svið endurhlaðanlegra rafhlaðna með starfsemi í öllum heimsálfum, Uniross framleiðir eingöngu endurhlaðanlegar rafhlöður og hefur þá stefnu að stuðla að því að þær komi alfarið í stað einnota. Vörumerkið Uniross auðveldar því kaupákvörðunina þar sem ekki þarf að lesa smáa letrið og finna út úr flókinn og mismunandi markaðssetningu einstakra vörumerkja til að komast að því hvort að um endurhlaðanleg eða einnota rafhlöður er að ræða.
Á síðastliðnu ári kom Uniross með spennandi nýjung í endurhlaðanlegum rafhlöður, það eru HYBRIO rafhlöðurnar sem enn eru aðeins fáanlegar í gerðum AA og AAA kostir þeirra umfram venjulegar endurhlaðanlegar rafhlöður er sá að þær koma tilbúnar til notkunnar þ.a.s. það þarf ekki að byrja á að hlaða þær og þær halda hleðslu í allt að eitt ár.
Á sama tíma gerði Uniross samning við náttúruverndarsamtökin WWF til þriggja ára sem m.a. þýðir að ákveðin upphæð af sölu á Uniross rafhlöðum rennur til verndunar líffræðilegum fjölbreytileika, þekktust eru samtökin WWF fyrir að vinna að verndun Panda bjarnarins.
Sjá nánar um WWF.
Uniros endurhlaðanlegar rafhlöður fást hér á Náttúrumarkaði.
Birt:
Tilvitnun:
Fótaferðir ehf. „Hvers vegna endurhlaðanlegar rafhlöður?“, Náttúran.is: 16. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2007/09/27/hvers-vegna-endurhlaanlegar-rafhlur/ [Skoðað:14. maí 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. september 2007
breytt: 16. febrúar 2009

