Sænsku neytendasamtökin leggja til að nýir bílar verði merktir á sama hátt og ný heimilistæki miðað við hversu orkusparandi þeir eru og hversu mikið þeir menga. Heimilistæki eins og ísskápar og þvottavélar eru merkt með tilliti til orkunotkunar með mjög skýrum hætti þar sem notkunin er greind í nokkra flokka. Á sama hátt væri hægt að merkja nýja bíla til glöggvunar fyrir kaupendur sem vilja vita hversu mikið tiltekinn bíll mengar, hversu mikið koldíoxíð hann losar og s.frv. Fram hefur komið í könnunum ný verið að allt að helmingur fólks á Norðurlöndunum og Vestur-Evrópu er tilbúinn til að greiða meira fyrir vörur og þjónustu ef tryggt er að það dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda og hægir á hlýnun jarðar.

Svipuð flokkun bifreiða hefur verið stunduð í Danmörku í nokkur ár. Þar er hægt að fara á vefinn www.hvorlangtpaaliteren.dk og finna þar bæði notaðar og nýjar bifreiðar til að finna út hversu umhverfisvænar þær eru og sjá í hvaða orkuflokki þær lenda.

Íslensk reiknivél þegar til á Orkusetur.is
Ofangreindar upplýsingar komu fram á vef Umhverfisstofnunar í fyrradag en á vef Orkuseturs hefur siðan í sumar verið hægt að nálgast einkunnareiknivél sem mælir eyðslu og kolefnisútblástur og gefur bílnum þínum einkunn. Einkunnarútreikningar sem Orkusetur styðst hér við eru byggðir á dönsku fyrirmyndinni og á sömu forsendum og Evrópska orkumerkið byggir á. Sjá frétt.

Sjá vef sænsku neytendasamtakanna.

Sjá viðmið Náttúrunnar fyrir orkumerki.

Að hluta úr frétt af vef Umhverfisstofnunar. Grafík: 2 bílar af gerólíkri gerð og dæmi um mism. einkunnagjöf skv. Evrópska orkumerkinu, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
Birt:
24. nóvember 2007
Uppruni:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Bílar verði merktir með orkumerki“, Náttúran.is: 24. nóvember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/11/24/bilar-veroi-merktir-eins-og-isskapar/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 12. janúar 2008

Skilaboð: