Líklegt er að loftmengun verði yfir heilsuverndarmörkum í dag, þriðjudag. Kalt er í lofti, lítill raki og logn og götur þurrar.  Bæði svifryk (PM10) og köfnunarefnisdíoxíð (NO2) gæti því farið yfir mörkin við helstu umferðargötur á höfuðborgarsvæðinu.

Bílaumferðin er meginorsök loftmengunar í Reykjavík og því er besta ráðið til að draga úr mengun að hvíla bílinn í dag. Svifryksmengun (PM10) fer yfir heilsuverndarmörk ef hún er yfir 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring. Köfnunarefnisdíoxíð (NO2) gæti einnig farið yfir klukkutíma heilsuverndarmörk í dag en mörkin eru 110 míkrógrömm á rúmmetra og skapast helst af útblæstri bifreiða.

Fólk ætti því að huga að því að taka strætó í dag, ganga og hjóla til og frá vinnu og skóla en þó ekki meðfram miklum umferðargötum. Jafnframt er mikilvægt að hafa farartæki ekki í lausagangi að óþörfu en kvartanir hafa verið að berast heilbrigðiseftirlitinu að undanförnu um lausagöngu farartækja. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu að forðast helstu umferðargötur í dag.

Á hádegi í dag var hálftímastyrkur svifryks (PM10) við Grensásveg að meðaltali 171 míkrógrömm. míkrógrömm á rúmmetra og hálftímastyrkur köfnunarefnisdíoxíð (NO2) var 95,5 míkrógrömm á rúmmetra.

Á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs og Reykjavíkurborgar er vefmælir sem sýnir svifryksmengun í Reykjavík
.
Birt:
10. febrúar 2009
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Loftmengun yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík“, Náttúran.is: 10. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/11/loftmengun-yfir-heilsuverndarmorkum-i-reykjavik/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. febrúar 2009

Skilaboð: