Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kynnir nýjar áherslur Tækniþróunarsjóðs við opnun kynningar á starfsemi sprotafyrirtækja í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 9. janúar kl. 14:00.

Sprotafyrirtæki kynna starfsemi sína bæði föstudag og laugardag.

Á laugardag kl. 13:00 verður fjallað um brúarsmíði milli sjóða og sprota og gerð grein fyrir opinberum stuðningi við nýsköpun.

Meðal þáttakenda eru Marorka, Mentor, Mentis Cura, ORF,  Kine, Stjörnu-Oddi,  Handpoint, Eff2, Clara, TellmeTwin, Matís og  Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Dagskrá föstudag 9. janúar 14:00 - 17:00
14:00 Ávarp iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar
14:15 Nokkur verkefni styrkt af Tækniþróunarsjóði, kynning og sýning
Dagskrá laugardag 10. janúar 12:00 - 17:00
12:00 Sýning sprotafyrirtækja opnuð
13:00 Brúarsmíði sjóða og sprota,
Tækniþróunarsjóður, Nýsköpunarsjóður, Impra og Innovit
Þátttakendur
Marorka • Mentor • Mentis Cura • ORF • Kine • Stjörnu-Oddi • Handpoint • Eff2
Clara • TellmeTwin • Matís • Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Birt:
8. janúar 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Vaxtasprotar og nýsköpun um helgina“, Náttúran.is: 8. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/09/vaxtasprotar-og-nyskopun-um-helgina/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. janúar 2009

Skilaboð: