Hlýnun jarðar þurrkar upp mólendi
Hækkun hitastigs á jörðinni mun samkvæmt nýrri japanskri rannsókn valda því að mólendi þornar upp og þar með losnar koltvísýringur út í andrúmsloftið.
Mór þekur um 2% af öllu landi á jörðinni og í honum situr mikill koltvísýringur.
Japönsku vísindamennirnir notuðu tölvulíkan til að komast að því að mólendi á hálendi, t.d. í Kanada, Rússlandi og Alaska muni þorna upp ef hitastig hækkar.
Hækki hitastig um 4 gráður á Celsius mun 40-86% af koltvísýringi sem bundinn er í mólendi losna.
Vísindamennirnir starfa hjá japanska hluta Marine-Earth Science and Technology stofnuninni. Reuters greindi frá.
Mynd frá Skaftafelli. Ljósmynd: Árni Tryggvason.
Birt:
16. október 2008
Tilvitnun:
Viðskiptablaðið „Hlýnun jarðar þurrkar upp mólendi“, Náttúran.is: 16. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/16/hlynun-jaroar-thurrkar-upp-molendi/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.