Höldur ehf - Bílaleiga Akureyrar fyrirtæki
Á Græna kortinu:
Leiga og skipti
Staður þar sem hægt er að leigja umhverfishæf farartæki eða vefur þar sem hægt er mæla sér mót og verða samferða í bíl með öðrum á forsendum þess að tekið sé þátt í kostnaði.
Vottanir og viðurkenningar:
Vakinn - Umhverfismerki silfur
Ferðamálastofa stendur að gæða- og umhverfiskerfinu Vakanum. Vakinn felur í sér viðameiri úttekt á starfsemi íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu en áður hefur þekkst hér á landi. Kerfinu er ætlað að auka öryggi og efla gæði og fagmennsku á sviði ferðaþjónustu. Hægt er að taka þátt í annað hvoru; gæðakerfi Vakans eða bæði gæða- og umhverfiskerfi Vakans. Hér á Vef Náttúrunnar eru áhersla lögð á að skrá þátttakendur sem uppfylla bæði gæða- og umhverfiskerfi Vakans. Umhverfismerki Vakans er í þremur stigum; brons, silfur og gull.
ISO 14001
ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðallinn er til þess að hjálpa fyrirtækjum til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sínum, uppfylla gildandi umhverfisreglugerðir, starfsleyfisákvæði og þar fram eftir götunum. ISO 14001 leggur áherslu á það hvernig varan er framleidd en ekki vöruna sjálfa. Vottun umhverfisstjórnunarkerfisins er framkvæmd af hlutlausum þriðja aðila.