Tegund bús: Blandað bú, kýrog sauðfé. Básafjós með 35 kúm og gamalt fjárhús með 150 kindum.
Opnunartími: Opið allt árið eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum, skólafólki og einstaklingum á öllum aldri. Enskukunnátta.
Leiðsögn: Tekið er á móti öllum gestum og hægt að panta leiðsögn um búið.
Aðstaða: Góð aðstaða, kaffisopi, salerni, hægt að fá sér sæti.
Annað: Eftir móttöku er gestum frjálst að skoða sig um á bænum og fara í gönguferðir um fallegt umhverfi bæjarins. Vægt komugjald, reiðufé.


Stór-Dunhagi
601 Akureyri

4626783
8667501
dunhagi@isl.is

Á Græna kortinu:

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: