Arctic Mood framleiðir annars vegar teppi og hins vegar te úr lífrænt vottuð hráefni. Tein sem komin eru í framleiðslu eru; Hress fress, Svísan, Sælkerasopi og Slakaðu á.


Smáraflöt 8
210 Garðabær

6637901
arcticmood.com

Á Græna kortinu:

Vottað lífrænt

Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa  staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Nýsköpun í heimabyggð

Nýsköpun þar sem náttúruafurðir og vistvænar/sjálfbærar framleiðsluaðferðir eru í hávegum hafðar.

Vottanir og viðurkenningar:

Vottað lífrænt - Tún

Á Íslandi annast Vottunarstofan Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð með lífrænum aðferðum, án eiturefna, tilbúins áburðar, hormóna eða erfðabreyttra lífvera. Vottað er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um lífræna landbúnaðarframleiðslu og reglur Túns um lífræna snyrtivöruframleiðslu og matreiðslu. Samkvæmt þeim er óheimilt að markaðssetja landbúnaðarvörur sem lífrænar nema þær hafi verið framleiddar í samræmi við ákvæði þessara staðla. Vottunin staðfestir að lífrænum aðferðum hafi verið beitt en metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.

Skilaboð: