Tegund bús: Blandað bú, kýr, kindur og hross. Tamning, þjálfun og reðkennsla, sala hrossa. Stórt hesthús og reiðhöll. Hrossarækt í 100 ár.
Opnunartími: Alla daga frá kl 13:00 – 18:00 eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum. Ágætt vald á ensku og Norðurlandamálum.
Leiðsögn: Tekið er á móti gestum og leiðsögn veitt um búið.
Annað: Hægt að fara gangandi og akandi upp á Skáneyjarbungu (jeppafært) en þaðan er fallegt útsýni. Stutt í Reykholt og Deildartunguhver.


Skáney, Reykholtsdalur
311 Borgarnes

4351143
8946343
skaney@skaney.is
skaney.is

Á Græna kortinu:

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: