Vottað lífrænt: Tún, haglendi, korn, mjólk, nautgripir; pökkun
Vörumerki: Bio-Bú
Vörur: Mjólk

Á býlinu Neðri Hálsi, Kjósahreppi stunda bændurnir Kristján Oddsson og Dóra Ruf lífrænan búskap. Á búinu er framleidd lífræn mjólk og er hún notuð til framleiðslu á lífrænni jógúrt, ís, skyri, rjóma og smjöri og markaðsett undir merkinu Biobú. Einnig er notuð lífrænt vottuð mjólk frá búunum Búlandi í Austur Landeyjum og Finnastöðum í Eyjafjarðasveit til framleiðslunnar. MS (Mjólkursamsalan) notar einnig lífræna mjólk frá Neðra Hálsi til markaðsetningar á ófitusprengdri drykkjarmjólk. Þá fellur eitthvað til af nautakjöti af nautum sem alin eru til kjötframleiðslu. Öll framleiðslan er vottuð lífræn frá Vottunarstofunni Túni.


Neðri-Háls
276 Mosfellsbær

http://www.biobu.is

Á Græna kortinu:

Vottað lífrænt

Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa  staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.

Vottanir og viðurkenningar:

Vottað lífrænt - Tún

Á Íslandi annast Vottunarstofan Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð með lífrænum aðferðum, án eiturefna, tilbúins áburðar, hormóna eða erfðabreyttra lífvera. Vottað er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um lífræna landbúnaðarframleiðslu og reglur Túns um lífræna snyrtivöruframleiðslu og matreiðslu. Samkvæmt þeim er óheimilt að markaðssetja landbúnaðarvörur sem lífrænar nema þær hafi verið framleiddar í samræmi við ákvæði þessara staðla. Vottunin staðfestir að lífrænum aðferðum hafi verið beitt en metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.

Skilaboð: