Tegund bús: Blandað bú, kýr, sauðfé og hross, einnig ræktun á Border Collie hundum.
Opnunartími: Opið alla daga í maí og á öðrum tímum eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum á öllum aldri. Góð enskukunnátta.
Leiðsögn: Tekið er á móti gestum og hægt að panta leiðsögn um búið.
Aðstaða: Kaffisopi, salerni. Hægt að fá sér sæti.
Annað: Á bænum eru mjög fallegar kisur, íslenskar hænur og hundur. Auðveld ganga er upp á Eyrarfjall og stutt í hið stórfenglega Kerlingargil.


Miðdalur, KJós
270 Mosfellsbær

5666834
8629243
middalur@emax.is

Á Græna kortinu:

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: