Tegund bús: Hrossaræktarbú, ferðaþjónusta.
Opnunartími: Opið allt árið, eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum á öllum aldri. Enskukunnátta fyrir erlenda ferðamenn.
Aðstaða: Aðgengi fyrir fatlaða, salerni, kaffi, hægt að fá sér sæti.
Leiðsögn: Hægt er að panta leiðsögn um staðinn og nágrenni hans.
Annað: Gistiaðstaða fyrir 40-50 manns, veitingasala, vínveitingaleyfi, hestaleiga og hestasýningar (lágmark 10 í hóp). Göngustígur að endurheimtu votlendi skammt frá bænum og þar er fuglaskoðunaraðstaða. Umhverfisstefna í hávegum höfð.


Gauksmýri
531 Hvammstangi

4512927
8697992
gauksmyri@gauksmyri.is
gauksmyri.is

Á Græna kortinu:

Fuglaskoðun

Fuglaskoðunarskýli á öllu landinu og þjónustuaðilar sem standa fyrir skoðunarferðum á svæði þar sem hægt er að fylgjast með fuglum í náttúrulegu umhverfi sínu. Þessi svæði geta verið viðkvæm varpsvæði eða kjörlendi, og því er brýnt að umgangast þau af varfærni.

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: