Kaffi kú er nýjung í Garðsbúinu.

Tegund bús: Kúabú, legubásafjós með mjaltaþjónum og nýjustu tækni.
Opnunartími: Opið eingöngu eftir pöntunum frá 1. júní til 30. september.
Við tökum á móti: Hópum og einstaklingum á öllum aldri.
Leiðsögn: Tekið er á móti gestum og hægt að panta leiðsögn um búið.
Aðstaða: Góð aðstaða fyrir gesti, kaffi eftir samkomulagi og salernisaðstaða.
Annað: Fallegar gönguleiðir í nágrenni bæjarins.


Garður
601 Akureyri

8631207
mumu@est.is
kaffiku.is

Á Græna kortinu:

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: