Rjómabúið Erpsstöðum er með verslun í fjósinu sem opin er frá 1. júní til 15. september ár hvert. Opnunartíminn er frá kl. 13:00 - 17:00.
Kjaftæði er rjómaís framleiddur á býlinu. Ísinn er framleiddur  með mörgum bragðtegundum.
Grikki og er nokkurskonar snakkostur. Hentar vel sem meðlæti, í salatið eða bara einn og sér.
Skyrkonfektið er sérhannað og þróað af stefnumóti hönnuða og bænda.

Tegund bús: Kúabú, mjólkur- og kjötframleiðsla.
Til sölu: Heimagerður mjólkurís.
Tökum á móti: Hópum.
Opnunartími árs: Allt árið.
Aðstaða: Salerni, bekkir og borð úti. Leiga á sumarhúsi allt árið.
Annað: Eiríksstaðir í Haukadal. Söguslóðir í Dalasýslu. Léttar gönguleiðir við Miðá og á Sauðafelli.


Erpsstaðir
371 Búðardalur

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Frá fyrstu hendi

„Frá fyrstu hendi” og hugtakið „Sveitamatur” eru gæðamerki á matvælum íslenskra sveita, þar sem megin þættir framleiðslunnar byggja á íslensu hráefni og íslenskri framleiðslu. Með íslensku hráefni er átt við hráefni frá landbúnaði, fiskveiðum og nýtingu afurða villtrar náttúru. Með framleiðslu er átt við framleiðslustað, hráefni, starfskrafta, reynslu, þekkingu og sögu- og menningarlegar hefðir.

Einungis félagsmenn í samtökunum Beint frá býli mega nota gæðamerkið „Frá fyrstu hendi” að undangenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum fyrir notkun gæðamerkisins.

Matarklasi Vesturlands - matur úr héraði

Matur úr héraði - Vesturland.

Merkinu er ætlað að vera uppruna og gæðastimpill fyrir vestlensk matvæli og rétti á matseðlum veitingahúsa.

Eftirfarandi viðmið verða höfð til hliðsjónar við úthlutun merkisins:

1. Að varan/rétturinn sé framleidd samkvæmt lögum um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla.

2. Að uppistaðan í hráefni vörunnar/réttsins sé upprunnin af Vesturlandi og að hver sú vinnsla sem gefur vörunni/réttinum einkenni sitt sé unnin á Vesturlandi.

3. Að varan/rétturinn hafi greinilega skýrskotun til vestlenskra matarhefða annaðhvort með því að endurspegla þjóðlega vestlenska hefð í matargerð eða endurspegla vöruþróun sem hefur skírskotun til svæðisins og upprunans.

4. Að varan/rétturinn tengist íslenskri matarhefð

Skilaboð: