Tegund bús: Sauðfjárbú, landnámshænsni, hestar, hundar.
Til sölu: Frosið lambakjöt. Lamba- og sauðahangikjöt.
Tökum á móti: Hópum og einstaklingum bæði á sauðburði og í haustsmalamennskur.
Opnunartími árs: Pantanir allt árið. Kjötið afgreitt í september til nóvember.
Annað: Í næsta nágrenni er laxveiði í Jöklu og náttúruperlan Húsey. Einnig bjóða ýmsir upp á gæsa- og rjúpnaveiði.


Blöndubakki
701 Egilsstaðir

8958929

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Vottanir og viðurkenningar:

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Skilaboð: