Tegund bús: Kúabú, básafjós með brautar/rörmjaltakerfi.
Opnunartími: Alla daga með áherslu á mjaltatíma, eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum og einstaklingum á öllum aldri. Enskukunnátta.
Aðstaða: Gott aðgengi fyrir fatlaða, kaffi, salerni og hægt að fá sér sæti.
Leiðsögn: Tekið er á móti gestum og leiðsögn veitt um búið.
Annað: Ferðaþjónusta, heimarafstöð og borhola fyrir heitt vatn. Kirkjustaður, fallegar gönguleiðir, mjög stutt í hestaleigu.


Ásólfsskáli
861 Hvolsvöllur

4878989
8617489
asolfsskali@simnet.is
asolfsskali.is

Á Græna kortinu:

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: