Tegund bús: Sauðfjárbú. Nýtt fjárhús. 200 kindur og 20 hross.
Opnunartími: Opið á laugardögum allt árið eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum, skólabörnum og einstaklingum á öllum aldri. Góð enskukunnátta.
Aðstaða og leiðsögn: Fyrir hópa upp að 8 manns er boðið inn í bæ, með kaffisopa, spjalli og leiðsögn um búið og nágrenni þess. Stærri hópum er boðið upp á skoðunarferð um búið og nágrenni þess.
Annað: Lækjarspræna og kofi þar sem hægt er að drullumalla. Silungsveiði í um 20 mín. göngufæri.


Arnarholt
801 Selfoss

4868621
8228421
gkot@mi.is

Á Græna kortinu:

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: