Green Map® System er alþjóðlegt flokkunarkerfi til að auðvelda þér að taka þátt í því að skapa sjálfbært samfélag. Þú finnur grænni fyrirtæki, vörur, og þjónustu sem og menningarstarfsemi og náttúrufyrirbæri alls staðar á landinu. Athugið að sumir flokkar taka einnig til varhugaverðra fyrirbæra og svæða.
NÝTT! Grænt kort – Suður, sérstök app-útgáfa um Suðurland.
Grænkortakerfið byggir á þremur yfirflokkum sem standa fyrir hinar þrjár stoðir sjálfbærrar þróunar, þ.e.; Náttúru (grænu flokkarnir), Menningu (appelsínugulu flokkarnir) og Hagkerfi (bláu flokkarnir).
Þú velur þann flokk sem þú vilt skoða en flokkarnir opnast niður við smell. Þá sérð þú nöfn og táknmyndir hvers flokks. Með smelli á táknmynd sérð þú alla aðilana í flokknum birtast á kortinu. Hægt er að slökkva á flokki með því að smella aftur. Með smelli á táknmyndirnar á kortinu opnast nánari upplýsingar. Þú færð enn nákvæmari upplýsingar um hvern aðila fyrir sig með því að smella á nöfn þeirra á kortinu eða á listanum.
Hugsum hnattrænt, kortleggjum nærumhverfið!
Grænt kort – Ísland. Framleiðandi Náttúran er ehf. 2014. Green Map® er skrásett vörumerki Green Map System, Inc. Táknmyndir Græna kortsins © Green Map® System, Inc. 2014. Öll réttindi áskilin.
Bláfáninn er umhverfismerki sem úthlutað er þeim smábátahöfnum og baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem miða að því að auka umhverfisgæði og umhverfisvitund gesta staðanna.
Aðallega árstíðabundnir markaðir sem bjóða upp á staðbundnar og á stundum lífrænt ræktaðar matvörur. Geta einnig verið með aðra framleiðslu úr sveit, s.s. handverk.
Framleiðsla sem byggir á því að endurnýta efni af ýmsum toga til nýrrar framleiðslu.
Helstu fyrirtæki og samlög sem taka á móti flokkuðum úrgangi. Einnig fagráð og sjóður sem hafa með endurvinnslumál að gera. Sjá fræðsluefni og nákvæma staðsetningu grenndargáma og gámastöðva á Endurvinnslukortinu hér á vefnum eða náðu þér í Endurvinnslukorts-appið.
Fyrirtæki sem hlotið hafa vottun frá Norræna Svaninum.
Grænar verslanir hafa þá meginstefnu að bjóða upp á afurðir úr héraði, lífrænt- og umhverfisvottaðar vörur. Stærri matvöruverslanir s.s. Bónus, Nettó, Samkaup, Hagkaup og Krónan bjóða auk þess upp á æ stærra vöruúrval í grænum deildum sínum.
Heildsala sem leggur aðaláherslu á að bjóða upp á lífrænt vottaðar vörur.
Áhersla er lögð á hollan og ferskan mat. Hráefni eru gjarnan lífrænt ræktuð, úr héraði. Árstíðauppskera, hráfæði eða grænmetisréttir eru í boði.
Staður þar sem hægt er að leigja umhverfishæf farartæki eða vefur þar sem hægt er mæla sér mót og verða samferða í bíl með öðrum á forsendum þess að tekið sé þátt í kostnaði.
Vottuð lífræn veitingaþjónusta. Enn er aðeins eitt fyrirtæki (hótel) vottað og býður það upp á lífrænt morgunverðarhlaðborð og nestispakka fyrir gesti. Óháð vottunarstofa staðfestir að starfsemin uppfylli reglur um lífræna framleiðslu við móttöku hráefna, geymslu og matreiðslu.
Kaffihús með lífræna vottun sem býður upp á lífrænt vottaðar veitingar.
Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.
Nytjamarkaðir og verslanir með notaða hluti og flóamarkaðir sem taka við gömlu dóti og selur áfram til góðgerðarstarfsemi. Einnig markaðir þar sem fólk getur selt notaða hluti í ágóðaskyni.
Nýsköpun þar sem náttúruafurðir og vistvænar/sjálfbærar framleiðsluaðferðir eru í hávegum hafðar.
Óhefðbundin gisting s.s. sófagisting, Airbnb, íbúðaskipti, gisting á bóndabæ o.fl. Sjá tjaldstæði í flokknum Tjaldstæði.
Tákn um Fair Trade (sanngirnisvottun, réttlætismerki) fá einungis þeir sem leggja megin áherslu á sölu Fair Trade vara í verslun sinni og samtökum sem leggja mikla áherslu á að kynna almenningi hugmyndafræði sanngjarnra viðskipta.
Fyrirtæki sem hafa vottun skv. ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðlinum til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfsemi sinnar.
Fyrirtæki sem bjóða upp á eða dreifa vörum sem hafa verið framleiddar í samræmi við Svaninn.
Fyrirtæki eða stofnun sem hlotið hefur umhverfisviðurkenningu, starfar undir stefnu Grænna farfuglaheimila, uppfyllir skilyrði umhverfiskerfis Vakans eða er með alþjóðlega umhverfisvottun Earth Check eða Norræna Svaninn.
Verslun eða vefverslun sem leggur aðaláherslu á að bjóða upp á lífrænt vottaðar vörur. Aðeins ein verslun hefur þó fengið lífræna vottun, þ.e. Matarbúr Kaju á Akranesi og í Reykjavík.
Staður þar sem hægt er að fá gert við hjól.
Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.
Afurðir byggðar á sjálfbærri nýtingu auðlinda og/eða afurðir sem teljast leyfileg aðföng í lífræna framleiðslu. Náttúruafurð er meðhöndluð frá og með söfnun til síðustu pökkunar eða merkingar eins og um lífræna afurð væri að ræða, en er auðkennd sem vottuð náttúruafurð.
Grasþök eru aftur að verða algengari í mörgum löndum. Bæði á háhýsum og sveitabýlum eða frístundahúsum. Á Íslandi er sterk hefð fyrir grasþökum enda hluti af byggingarhefð torfbæjanna. Grasþök eru umhverfisvæn m.a. að því leyti að þau kæla og hreinsa loftið, eru ágætis eldvörn í húsum og endurvinna regnvatn. Grasþök í borgum auka lífsgæði og yndisauka á mölinni.
Svansvottað fyrirtæki sem býður upp á ræstingarþjónustu.
Umhverfisvæn nýsköpun sem nær bæði til nýrra aðferða, vinnu- og framleiðsluferla eða beinna afurða nýrrar vistvænnar þekkingar.
Staðir þar sem matarleifum og garðúrgangi er umbreytt í næringarríka mold með hjálp maðka, einangraðra jarðgerðaríláta og móður náttúru. Á þessum stöðum geta verið stórfelld verkefni í gangi eða minni kynningarverkefni ásamt upplýsingum og búnaði til að byrja sína eigin jarðgerð í garðinum.
Jarðvarmavirkjanir virkja það varmaflæði og þá heitu gufu sem er að finna á háhitasvæðum. Orkuframleiðsla jarðvarmavirkjana er af mörgum talin sjálfbær en enn sem komið er hafa vandamál s.s. brennisteinsmengun og kolefnislosun ekki verið leyst.
Verkefni sem stuðla að minnkun gróðurhúsalofttegunda á einhvern hátt.
Frumframleiðandi vöru eða hráefnis sem unnið er úr íslensku náttúruefni.
Vettvangur, þjónusta, verkefni eða vörur sem lágmarka orkunotkun.
Virkja þá fallorku sem er að finna í ám og straumvötnum. Orkuframleiðsla vatnsaflsvirkjana veldur í flestum tilvikum óafturkræfum umhverfisáhrifum þ.e. nota verður uppistöðulón og miðlunarlón til að halda orkuframleiðslu stöðugri.
Vindurinn er enn sem komið er vannýtt auðlind hér á landi. Hér kortleggjum við svæði þar sem vindmyllur hafa verið settar upp í tilraunaskyni og fyrirtæki sem þróa vindmyllur.
Þrjár byggingar eru nú vottaðar samkvæmt vottunarkerfinu BREEAM. Lagt er mat á hönnun, umhverfisstjórnun í rekstri og framkvæmd og lögð áhersla heilsusamlegt umhverfi fyrir notendur byggingarinnar. Aðrar vistvænar byggingar eru t.d. Sesseljuhús á Sólheimum
Rannsóknarsetur háskóla, stofnana sem og einkaaðila sem vinna að rannsóknum á sviði umhverfis og náttúru.
Fyrirtæki sem halda úti almenningssamgöngum á landi.
Bíla- og hjólastæði við miðlægar miðstöðvar almenningssamgangna/stoppistöðvar sem auðvelda skipti úr einum samgöngumáta yfir í annan.
Stígur sem fer um sérstaklega áhugaverð svæði og mælt er með. Einnig göngugötur og svæði sem eru sérstaklega vænlegar til göngu og án mótorknúinna ökutækja. Táknið gildir einnig fyrir hlaupabrautir gegnum náttúrusvæði.
Þar sem vélknúin umferð í Reykjavík skapar hættur, umferð er þung, hávaðasöm, mengandi eða getur skapað hættur fyrir gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og íbúa hverfisins.
Góður staður til að kaupa, fá lánuð eða leigja hjól og önnur farartæki knúin mannafli. Félög og staðir þar sem hægt er að fá upplýsingar um öryggismál og kynningarstarf tengt hjólreiðum.
Staður þar sem hægt er að fá leigt hjól.
Ferjur á Íslandi sem sigla samkvæmt fastri áætlun.
Vegir þar sem hætta getur verið á skriðum eða snjóflóðum.
Staðir sem selja vistvænt eldsneyti s.s. metan, bíódísel eða VLO blandað dísel. Hægt að fá rafmagn á rafbíla eða skipta út rafhlöðum í þar til gerð ökutæki. Allar stöðvar Olís og ÓB stöðvar selja nú eingöngu VLO blandaða díselolíu
Mengun frá iðnaði og jarðhitavirkjunum, álverum (þynningarsvæði) og losun frá járnblendiverksmiðjunni. Svæði þar sem loftborið flúor og brennisteinn veldur mengun.
Svæði sem gefa góð dæmi um fyrirsjáanleg áhrif loftslagbreytinga á alla plánetuna.
Svæði sem orðin eru svo til ónothæf af völdum eiturefnaúrgangs eða annarrar slæmrar umhirðu ábyrgðarlauss iðnaðar og fólks.
Yfirlýst „svæði án erfðabreyttra lífvera“ samkvæmt GMO-Free Regions Europe.
Svæði þar sem veitt hefur verið leyfi til erfðabreyttrar ræktunar á byggi utandyra.
Bygging eða landsvæði sem hefur verið yfirgefið af fyrri ábúendum.
Vatnsföll sem hafa sérstöðu vegna fegurðar, stærðar og/eða sögulegs gildis.
Fjall sem er byggt upp af endurteknu hraunflæði. Ísland er eitt virkasta eldfjallasvæði Jarðar. Búast má við eldgosi á Íslandi hvenær sem er. Hér kortleggjum við helstu eldfjöll landsins.
Fjörur og strandlengjur þar sem hægt er að ganga um og njóta fjölbreytts gróðurfars og dýralífs. Ljósar sandstrendur sem eru aðallega gerðar úr skeljabrotum, eru til staðar á vesturhluta Vestfjarðakjálkans og á Snæfellsnesi. Aðrar strendur á Íslandi eru gerður úr svörtum basaltsandi.
Fossar sem hafa sérstöðu vegna náttúrufegurðar, hæðar, eða annarra sérkenna.
Öll friðlönd eiga það sameiginlegt að dýralíf og landslag nýtur verndar. Ennfremur gilda takmarkanir á þróun og uppbyggingu svæðanna og aðgangur almennings er takmarkaður.
Flokkur I – skv. viðmiði IUCN.
Fyrirtæki sem bjóða upp á ábyrgar hvalaskoðunarferðir skv. reglum Ice Whale (Félags hvalaskoðunarfyrirtækja).
Jarðhitasvæði eru fjölmörg á Íslandi. Vinsamlegast gætið varúðar við skoðun þeirra, bæði vegna eigin öryggis og vegna náttúruverndar. Við kortleggjum einungis þau svæði sem eru sérstaklega skilgreind og talin örugg fyrir ferðamenn.
Þeir eru að bráðna hratt og geta horfið innan næstu 200 ára. Grunnvatnsbirgðir á Íslandi eru háðar bæði jöklum og úrkomu. Landslag á Íslandi er ennfremur sorfið og mótað af jöklum. Hér eru helstu jöklarnir kortlagðir.
Náttúrulegar baðlaugar eru laugar sem að öllu eða miklu leiti eru gerðar af náttúrunnar hendi. Fólki er bent á að ekki eru allar laugar opnar almenningi. Fara skal með gát þegar laugar eru notaðar og alltaf kynna sér hitastig áður en farið er út í.
Einstakar náttúrumyndanir sem eru annað hvort áberandi fagrar eða vísindalega áhugaverðar. Um er að ræða fossa, eldfjöll, hveri og laugar, stuðlaberg, steingervinga og einstaka fundarstaði steinda.
Flokkur III – sbr. viðmið IUCN.
Votlendi sem er skilgreint samkvæmt hinum alþjóðlega Ramsar samningi. Um er að ræða land sem hefur mikið alþjóðlegt gildi og er sérstakt vegna líffræðilegrar fjölbreytni. Á Íslandi er um að ræða vötn, ár, votlendi, óshólma, tjarnir og lón.
Stöðuvötn, stærri en 10 km2, og vatnasvið sem hafa sérstöðu vegna náttúrufegurðar, stærðar, dýptar eða annarra eiginleika.
Landsvæði sem hefur verið fegrað á vistvænan hátt í því augnamiði að viðhalda eða endurvekja upprunalegan líffræðilegan fjölbreytileika og virkni vistkerfisins.
Opinber vernduð vatnsból fyrir drykkjarvatn.
Vernduð svæði sem eru í umsjá og eigu ríkisins. Svæðin eru talin einstök með tilliti til landslags, dýralífs, gróðurfars eða menningar. Gestir eru velkomnir og til staðar er aðstaða til að upplifa og fræðast um náttúru hvers svæðis. Íslenskir þjóðgarðar einkennast aðallega af eldfjallalandslagi, jöklum, hraunum og jarðmyndunum.
Flokkur II – skv. viðmiði IUCN.
Svæði sem njóta verndar samkvæmt beiðni hlutaðeigandi sveitarfélags og eru undir stjórn sveitarfélagsins. Fólkvangar eru fyrst og fremst ætlaðir til útivistar og eru opnir almenningi.
Flokkur V – skv. viðmiði IUCN.
Staðir sem rómaðir eru fyrir haustlitafegurð.
Stórir garðar með mjög fjölbreyttri flóru, í umsjón sveitarfélaga, opinberra stofnanna eða félaga.
Landskikar sem leigðir eru út sem matjurtagarðar á vegum sveitarfélaga. Margir voru áður skólagarðar en eru nú leigðir til almennings á sanngjörnu verði.
Tré sem hefur einhverja merka sögu, er sérstaklega fallegt, stórt, gamalt eða sjaldgæft. Einnig tré sem valin hafa verið sem „tré ársins“.
Svæði þar sem tré og runnar eru taldir tilheyra því gróðurfari sem var fyrir þegar land byggðist.
Staður þar sem endur, gæsir, svanir og aðrir vatnafuglar safnast saman. Innan þéttbýlis eru þetta oft staðir þar sem sterk hefð er fyrir því að fóðra fuglana og njóta nærveru þeirra.
Býli og garðar þar sem dýr búa og eru til sýnis. Þau geta verið verið af villtum uppruna, verið húsdýr eða fædd í garðinum.
Fuglaskoðunarskýli á öllu landinu og þjónustuaðilar sem standa fyrir skoðunarferðum á svæði þar sem hægt er að fylgjast með fuglum í náttúrulegu umhverfi sínu. Þessi svæði geta verið viðkvæm varpsvæði eða kjörlendi, og því er brýnt að umgangast þau af varfærni.
Hreindýr eru ekki upprunaleg íslensk spendýr heldur voru þau flutt hingað frá Finnmörku á 18. öld. Í dag lifa hreindýrahjarðir aðallega á Austurlandi. Hér kortleggjum við búsvæði hreindýra.
Ísbjörninn á sér ekki fasta búsetu á Íslandi, heldur kemur hann stundum á ísjökum til landsins, einkum að vetrarlagi frá austurströnd Grænlands. Hér kortleggjum við þær stofnanir sem bera ábyrgð á upplýsingum um ísbirni.
Svæði meðfram ströndum með áhugaverðu dýralífi. Ýmis konar dýralíf getur verið að finna bæði í eða fyrir ofan vatnið, á ströndinni eða í landinu í kring. T.d. selaslóðir, varpstöðvar.
Ræktendur og seljendur eggja og hænsna af hreinu landnámshænsnakyni auk félags þeirra.
Á Íslandi eru ein stærstu lundabúsvæði heims. Hér kortleggjum við öll helstu búsvæðin.
Melrakkinn er norðlægasta refategundin og er útbreiddur á strandsvæðum og eyjum allt í kringum Norðurheimskaut. Hér kortleggjum við helstu útbreiðslustaði, þjónustuaðila og upplýsingaveitur.
Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.
Tvær tegundir sela kæpa við Ísland, landselur og útselur. Fylgist vel með sjávarföllum áður en lagt er í selaskoðunarleiðangur. Hér kortleggjum við nokkra góða útsýnisstaði fyrir selaskoðun og aðila sem bjóða upp á selaskoðunarferðir.
Vistkerfi í fersk- og saltvatni, og hið fjölbreytta dýralíf sem þrífst í vatni. Söfn og náttúrustofur sem fást við vatnavistfræði og ýmiskonar sýningar henni tengdar.
Búsvæði sem njóta viðvarandi verndar til að tryggja viðhald líffræðilegs fjölbreytileika, með verndun og endurheimt ákveðinna tegunda og vistkerfa.
Flokkur IV – skv. viðmiði IUCN.
Almenningsgarðar sem bjóða upp á afslöppun og leik. Íþróttaleikvangar eða leikvellir þar sem einnig má finna einhvern gróður, tjarnir, læki og þessháttar.
Svæði eða torg þar sem fólk kemursaman og hægt er að halda minni eða stærri samkomur. Einnig tímabundin verkefni um fegrun torga í bæjarumhverfinu.
Fyrirtæki, félög, vefsíður og staðir sem bjóða upp á upplýsingar um flúðasiglingar og/eða bjóða upp á flúðasiglingaferðir.
Svæði þar sem aðstaða er fyrir áhugafólk um hjólabretti að safnast saman og æfa íþrótt sína.
Íslenski hesturinn er smávaxinn en mjög þolinn. Hann hefur fimm gangtegundir: fet, brokk, stökk, tölt og skeið. Hér kortleggjum við aðila sem veita upplýsingar eða bjóða upp á hestaferðir.
Svæði sem bjóða upp á leiki og ævintýralegar áskoranir í náttúrunni. Háloftasveiflur, hellaskoðun, ísklifur og annað tilheyra þessum flokki.
Öll helstu kajaksvæði landsins sem og fyrirtæki sem bjóða upp á þjónustuna.
Fyrirtæki, félög og vefsíður sem sérhæfa sig í skipulagningu gönguferða um náttúru Íslands.
Norðurljós er ljósfræðilegt fyrirbrigði sem einkennist af litríkum dansi ljóss á næturhimninum. Ljósin orsakast af samverkun hlaðinna einda úr sólvindi og efri lögum andrúmslofts jarðarinnar. Þegar slík ljós myndast á suðurhvelinu er þau kölluð suðurljós en norðurljós á norðurhvelinu. Ljósin sjást vel á Íslandi á veturna. Best er sjá norðurljós fjarri ljósmenguðum stöðum. Hér kortleggjum við nokkra góða útsýnisstaði.
Félög og klúbbar áhugafólks um ýmiss konar árabáta og seglbáta.
Staðir þar sem sérlega gott er að sjá sólina koma upp og setjast.
Sundlaugar af öllum stærðum sem oftast eru reknar af sveitarfélögum. Heitar inni- og úti sundlaugar sem oftast nær eru kyntar með jarðhita.
Svæði ætlað til gistingar í tjöldum og þessháttar búnaði. Ætlast er til að farið sé af gát um náttúruna á og umhverfis svæðin.
Fyrirtæki sem leigja útivistarbúnað.
Afgirt svæði í borgum og bæjum þar sem hundar geta leikið sér við aðra hunda.
Vinsælir staðir þar sem skoða má útsýnið með aðstoð útsýnisskífu sem sýnir nöfn á fjöllum og öðrum kennileitum.
Skíðasvæði fyrir almenning sem eru með skíðalyftur, skíðaskála og aðra þjónustu.
Trú á álfa og tröll er sennilega tengd keltneskri arfleifð okkar, sem og óbilgjarnri náttúru og veðráttu. Hér kortleggjum við helstu staði sem taldir eru vera byggðir álfa, anda eða annarra yfirnáttúrulegra fyrirbæra.
Svæði sem hefur athyglisvert umhverfi og er öruggt og opið fyrir börn.
Svæði þar sem eldra fólk getur stundað tómstundir.
Staðir, samfélagsmiðlar eða vefsíður sem geta tengt fólk með sameiginleg áhugamál sem tengjast umhverfismálum.
Hverfi með húsum sem hafa verið gerð upp til upprunalegs ástands og sýna vel byggingararfleifð staðarins.
Minjasöfn og sögustaðir sem tengjast menningu og tækniþróun samfélagsins í gegnum tíðina.
Staðir, plötubúðir, tónlistarstöðvar og vefsíður sem kynna íslenska tónlist, útgáfufyrirtæki, hljómsveitir, tónlistarhátíðir og viðburði.
Staðir tengdir list og menningu um allt land.
Menningarstaðir þar sem flutt er lifandi tónlist, dans og/eða leikhúsverk.
Félög og samtök íbúa af ýmsum þjóðernum og með margvíslegan bakgrunn, menningu og trúarskoðanir.
Hér eru skráð öll menningarsetur á Íslandi. Þau eiga á ýmsan hátt snaran þátt í sjálfsmynd þjóðarinnar, umhverfi, menningu og ímynd borga og sveita. Söfn, setur og minnisvarðar sem og staðir sem eru ekki endilega stofnanavæddir eru skráðir í þennan flokk.
Óhefðbundin heilsulind eða staður sem býður upp á meðferðir byggðar á böðum og/eða náttúrulegum lækningum.
Söfn um allt land.
Byggingar, stofnanir, minnismerki eða ómerkt sögufræg svæði sem hafa sérstaka merkingu fyrir menningu og sögu borgar jafnt sem þjóðar.
Hefðbundin íslensk hús, byggð úr torfi, grasi og grjóti, eftirmyndir og tilgátuhús byggð á grundvelli rannsókna.
Ýmiss konar bókasöfn opin almenningi.
Græna Íslandskortið er aðgengileg í gegnum vefmiðilinn natturan.is. Öllum er frjálst að birta tengla á kortið af sínum vefsíðum. Græna kortið er til í vefútgáfu og einnig í prentútgáfu sem dreift er ókeypis.
Waldorfskólar, leik- og grunnskólar sem sérhæfa sig í útikennslu og umhverfismennt ásamt þátttökuskólum á öllum skólastigum í verkefninu Skólar á grænni grein, einnig þeir sem hafa hlotið viðurkenninguna Grænfánann.
Staðsetningar mæla sem sýna magn mengandi efna í andrúmsloftinu. Stofnanir sem standa að mengunarmælingum.
Óháð umhverfismiðlun getur verið í formi vefja, tímarita, dagblaða, útvarps og sjónvarpsþátta, og myndbanda sem gerð eru til styrktar eða fræðslu um málefni umhverfisins.
Allt frá skipulögðu námi á öllum skólastigum, til einstakra umhverfisfræðslunámskeiða og fyrirlestra ætluðum almenningi.
Staður eða vefsvæði sem hægt er að leita til til að fá upplýsingar um ýmiskonar umhverfistengt málefni. Þaðan er vísað áfram á græn vefsvæði og aðra þjónustu á sviði umhverfismála.
Vefslóðir á síður með staðbundnar upplýsingar um ýmiskonar umhverfismál.
Stofnanir og umboðsaðilar sem hafa sérfræðiþekkingu á umhverfisvottunum, hvort sem um er að ræða IFOAM staðla, ISO staðla, Svaninn eða aðrar vottanir.
Aðgerðasinnuð félög eða samtök sem vinna að verndun umhverfisins og bættu sambýli mannsins við náttúruna, ekki endilega bara í tæknilegum skilningi heldur líka siðferðilegum.
Tímabundið verkefni, útgáfa, sýning eða viðburður með aðaláherslu á náttúruna og umhverfið.
Dreifingarmiðstöð fyrir ókeypis matvæli. Slíkar miðstöðvar koma fólki í þörf til hjálpar og koma um leið í veg fyrir að „umfram“ matvæli skemmist. Vinna í þeim er oftast sjálfboðavinna og má sannarlega kallast ómetanleg samfélagsþjónusta.
Stofnanir sem hafa yfirumsjón með umhverfis- og náttúrutengdri stjórnsýslu. Ráðuneyti sem hafa með umhverfis-, mennta- og ferðamál að gera og stofnanir sem heyra beint undir Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
Samtök rekin af sjálfboðaliðum í þágu umhverfisins.
Sérfræðingar, þjónusta eða skrifstofur sem vinna að því að hjálpa bæði einstaklingum og samfélaginu í heild sinna við að móta umhverfisvænar stefnur og lífshætti. Geta verið ríkisrekin, frjáls félagasamtök, grasrótarsamtök, verkfræðistofur, umhverfisfræðingar og ráðgjafar á sviði umhverfisfræða og umhverfisfræðslu
Samtök, félög eða klúbbar sem hafa umhverfisvernd og fræðslu sem megin viðfangsefni og starfa ekki í hagnaðarskyni.
Almenningssalerni í Reykjavík.
Spennubreytar eru mikilvægir í flutningskerfi raforku sem flytur rafmagn eftir rafmagnslínum frá virkjunum til stórra og smærri notenda. Flutningskerfi raforku á Íslandi er byggt á stórum einingum en erlendis er farið að framleiða orku í smærri og sjálfbærari einingum.
Spítalar og móttökur innan heilsugæslu. Móttökur heilsugæslustöðva, neyðarmóttökur fyrir alvarlegri kvilla eins og eitranir og bráðaofnæmi og ýmsar læknavaktir.
Brennslustöð fyrir almennt heimilissorp og sorp frá iðnaðarfyrirtækjum.
Allir vitar á Íslandi. Viti er turn, bygging eða mannvirki sem er hannað til að gefa frá sér ljós með kerfi lampa og linsa, ætlað til hjálpar sjófarendum.
Finnir þú ekki aðila eða stað er hægt að láta vita af því hér og verður þá bætt úr því falli skráningin undir viðfangsefni Græna kortsins.
NýskráEf þú tengist aðila á Græna kortinu og vilt bæta við upplýsingar eða breyta þeim.
Ítarskráning