Nota úrgang til að knýja þúsund bíla
Fyrir lok næsta árs er stefnt að opnun fyrsta metanorkuversins hér á landi sem nýtir lífrænan úrgang til framleiðslu á metangasi. Í dag verður skrifað undir viljayfirlýsingu Stjörnugríss og Metanorku hf., dótturfélags Íslenska gámafélagsins, um að kanna vænleika þess að nýta úrgang frá svínabúi Stjörnugríss að Melum í Melasveit til framleiðslu og sölu metans. Metanorkuverið að Melum á að verða fyrst í heimi til að nýta heitt vatn til að halda gerjunartanki við kjörhitastig.
Geir Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss, segist lengi hafa haft hug á gasframleiðslu. Vegna hækkana á verði eldsneytis og korns séu aðstæður nú með þeim hætti að verkefnið sé fýsilegt. „Þetta er skref í þá átt að gera búið sem sjálfbærast,“ segir hann, en við afgösun verður áburðurinn betri og lyktarminni. Hann verður nýttur til að rækta korn handa svínunum og ökutækjum búsins breytt til að nýta gasið.
Kostnaður við gerð orkuversins er talinn nema 350 til 400 milljónum króna. Geir telur verkefnið engu að síður hagkvæmt, bæði þjóðhagslega og fyrir búið. „Með þessu spörum við gjaldeyri upp á að minnsta kosti 120 milljónir á ári. Til þess að gera þetta mögulegt þá þarf ákveðna stærðarhagkvæmni og hún er til staðar á þessu svæði. Þarna er líka pláss til kornræktar og í leiðinni leysum við mál varðandi lyktmengun og annað. Þetta er grænt og vænt í alla staði.“
Metanorka setur svo upp gassölustöð þar sem aðrir geta fyllt á bíla sína. „Við sjáum fyrir okkur að svona orkustöðvar rísi í öllum landshlutum á næstu fimm árum,“ segir Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri Metanorku.
Framleiðslugeta búsins á að verða allt að 1,3 milljónir rúmmetra (Nm3) af metani, en það jafngildir tæplega einni og hálfri milljón lítra af bensíni. „Slík framleiðsla nemur ársnotkun um eitt þúsund meðalstórra fjölskyldubíla,“ segir Dofri og kveður frumathuganir benda til þess að rekstrargrundvöllur sé fyrir verkefninu. Hann segir það hafa verið kynnt sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og fengið jákvæðar undirtektir.
Ljósmynd: Svín, af theavalance.net.
Birt:
Tilvitnun:
Olikr „Nota úrgang til að knýja þúsund bíla“, Náttúran.is: 29. apríl 2011 URL: http://nature.is/d/2011/04/29/nota-urgang-til-ad-knua-thusund-bila/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 5. maí 2012