Umhverfisráðuneytið boðar til opins kynningarfundar um  helstu niðurstöður nýrrar skýrslu OSPAR um ástand Norð-Austur Atlantshafsins. Flutt verða erindi um ástand hafsins kringum Ísland, mengun, súrnun og fyrirhuguð verndarsvæði OSPAR. Fundurinn verður haldinn í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, föstudaginn 4. febrúar kl. 12:00-13:00.

Erindi:

  • Mengandi efni í hafinu umhverfis Ísland - niðurstöður ástandsskýrslu OSPAR. Helgi Jensson, ráðgjafi hjá Umhverfisstofnun.
  • Súrnun hafsins umhverfis Ísland - þróun síðustu ára og horfur. Jón Ólafsson, haffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun.
  • Stofnun verndarsvæða á hafsvæðum OSPAR. Sesselja Bjarnadóttir, sérfræðingur í umhverfisráðuneytinu.

Skýrsla OSPAR um ástand Norð-Austur Atlantshafsins.

Birt:
1. febrúar 2011
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Fundur um mengun hafsins, súrnun og verndarsvæði“, Náttúran.is: 1. febrúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/02/01/fundur-um-mengun-hafsins-surnun-og-verndarsvaedi/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 3. febrúar 2011

Skilaboð: