Vatnavinir samanstanda af alþjóðlegum hópi fagfólks sem koma úr ólíkum greinum byggingarlistar, hönnunar, markaðssetningar, ferðamennsku, heimspeki og listum.

Hópurinn hefur um árabil unnið að hugmyndafræði sem byggir á fjölbreyttri uppbyggingu atvinnulífs og sjálfbærri nýtingu auðlinda Íslands með heilsutengdri ferðaþjónustu í nánum tengslum við jarðvarma og náttúru landsins. Undir yfirskriftinni Heilsulandið Ísland  hafa þau kortlagt staði og möguleika, og unnið að endurbótum á eldri laugum og baðstöðum ásamt því að koma að uppbyggingu nýrra heilsulinda víðsvegar um landið. Mikill metnaður einkennir starf Vatnavina og verkefni þeirra fyrir Vestfirðina sem unnið var í samstarfi við staðarhaldara á hverjum stað, sveitafélögin og atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hlaut núverið verðlaunin European Destination of Excellence 2010. Auk þess voru Vatnavinir valdir fyrir hönd Íslands á norrænu sýninguna manMADEenvironment sem sett var upp í Norsk Form í Osló fyrir stuttu og mun þaðan ferðast á milli allra Norðurlandanna og verður hér í Norræna Húsinu  á Íslandi næsta sumar.

Á fimmtudagskvöldið kl. 20:00 mun Olga Guðrún Sigfúsdóttir, arkitekt FAÍ kynna hugmyndafræði og verkefni hópsins, þ.m.t. Vestfjarðaverkefnið, Suður- og Norðurland auk spennandi hugmynda fyrir baðborgina Reykjavík.

Ókeypis er inn og allir velkomnir.

Birt:
1. desember 2010
Tilvitnun:
Olga Guðrún Sigfúsdóttir „Vatnavinir kynna Heilsulandið Ísland í Hafnarhúsinu“, Náttúran.is: 1. desember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/12/01/vatnavinir-kynna-heilsulandid-island-i-hafnarhusin/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: