Í dag, miðvikudaginn 27. maí kl. 17.30, gangast nokkrir kennarar og nemendur í Háskóla Íslands fyrir málfundi og myndasýningu undir fyrirsögninni "Höfnum erfðabreyttum lífverum á Íslandi!" Fundurinn er haldinn í Háskólatorgi nr. 102.

Tilefni fundarins er fyrirliggjandi umsókn um leyfi til stórfelldrar útiræktunar á erfðabreyttu byggi til lyfja- og iðnaðarframleiðslu á Rangárvöllum.

Sýnd verður kvikmyndin "The World According to Monsanto" sem fjallar um félagsleg og vistfræðileg áhrif ræktunar erfðabreyttra plantna og skaðleg áhrif einkaleyfa sem líftæknifyrirtæki hafa komið sér upp á frætegundum.

Hinn heimskunni metsöluhöfundur Jeffrey Smith ávarpar fundinn og í lokin verða almennar umræður um málefni fundarins.

Mynd frá rense.com.

Birt:
27. maí 2009
Höfundur:
Háskóli Íslands
Tilvitnun:
Háskóli Íslands „Höfnum erfðabreyttum lífverum á Íslandi!“, Náttúran.is: 27. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/27/hofnum-erfoabreyttum-lifverum-islandi/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: