Endurvinnslukortið IconNáttúran.is hefur gefið út Endurvinnslukort fyrir iPhone og iPad og er það nú aðgengilegt í AppStore. Smáforritið er ókeypis og notkun þess líka. Þeir sem nota það yfir 3G eða 4G samband greiða fyrir gagnflutning sem reynt er að halda í lágmarki.

Tilgangur Endurvinnskortsins er að fræða um flokkun og endurvinnslu og einfalda leit að réttum stað fyrir hvern endurvinnsluflokk og stuðla þannig að betri flokkun ásamt betri og markvissari endurvinnslu.

Endurvinnslukortið verður einnig fáanlegt á ensku og fyrir Android innan skamms.

Helstu samstarfsaðilar við gerð Endurvinnslukortsins eru; Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Sorpa bs., Úrvinnslusjóður, Umhverfissjóður Landsbanka Íslands, Gámaþjónustan, Sorpstöð Suðurlands bs. og Reykjavíkurborg og þakkar Náttúran.is þeim fyrir gott samstarf.

Endurvinnslukortið fyrir iPhone og iPad má nálgast í App Store.

Sækja forritið

 

 

 

Með þvi að skanna inn QR kóðan má fara beint á forritð í iPhone eða iPad

Náttúran.is vonar að Endurvinnslukortið verði gagnlegt verkfæri og auki meðvitund um endurvinnslu og förgun úrgangs.

 

Útgáfa 1.0.3 fyrir iOS 8

15. janúar 2015

Ný útgáfa sem bregst við öryggiskröfum í iOS 8 er í skimun hjá Apple. Hún verður aðgengileg innan tíðar.

Birt:
4. maí 2014
Tilvitnun:
Einar Bergmundur, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Smáforrit Náttúrunnar - Endurvinnslukortið“, Náttúran.is: 4. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2012/06/27/smaforrit-apps/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. júní 2012
breytt: 10. desember 2015

Skilaboð: