Til þess að einfalda endurvinnsluna og hvetja fólk til að taka þátt í því að minnka magn sorps sem fer óflokkað í heimilistunnuna, engum til gagns né gleði, hefur Náttúran þróað nýtt Endurvinnslukort. Svona virkar kortið:

Þjónusta:
Á Endurvinnslukortinu er hægt að sjá hvaða þjónusta er í boði í nágrenni, í radíus frá 100 metrum til 100 kílómetra. Staðsetning miðast við hnit innslegins heimilisfangs eða reiknaða staðsetningu tölvu eða handtækis. Draga má punktinn um kortið til að sjá þjónustu í nágrenni annara staða.

Tunnuþjónusta:
Ef slegið er inn nafn sveitarfélags sjást útlínur sveitarfélagsins og upplýsingar birtast um tunnuþjónustur í viðkomandi sveitarfélagi.

Gámar og móttökustaðir:
Þekki maður heiti stöðvar er hægt að slá það inn í leitargluggann en það getur verið hjálplegt vilji maður vita hvar ákveðin stöð er staðsett og hverju hún tekur á móti.

Einnig er hægt að smella á gáma og móttökustöðvatáknin og birtast þá allar stöðvar af tiltekinni gerð á landinu. Tegundir gáma og móttökustöðva eru; Móttökustöð, Grenndargámur, Gámastöð og Flöskumóttaka. Nánari skýringar á stöðvunum birtast við smell á táknmyndirnar. Ef smellt er á táknmyndirnar á kortinu sjálfu birtist nafn og heimilisfang valinnar stöðvar og við frekari smell birtist rekstraraðili og þeir endurvinnsluflokkar sem tekið er á móti á tiltekinni stöð.

Þú getur valið á milli nokkurra gerða af grunnkortum með því að smella á hnappinn efst t.h. á kortinu.        

Flokkar:
Til að einfalda aðgengi að því sem leitað er að eru upplýsingar um hina ýsmu endurvinnsluflokka settar upp í 12 yfirflokka. Yfirflokkarnir eru: Plast, Eiturefni, Flöskur og dósir, Gler, Garðaúrgangur, Molta, Fatnaður, Málmar, Heimilið, Bílar, Raftæki og Pappír. Undir hverjum yfirflokki eru síðan tilheyrandi endurvinnsluflokkar með táknmyndum (Fenúr flokkunarmerkin, grænar táknmyndir og aukaflokkar, svart-hvítar táknmyndir) með skýringatextum og sem tengjast þeim móttökustöðvum á landinu sem taka við viðkomandi flokki, bæði á kortinu sjálfu og í lista.

Stöðugt er unnið að betrumbótum á kortinu og nú er unnið að því að gera Endurvinnslukort með fjölda nýrra þjónustuliða fyrir sveitarfélögin.

Endurvinnslukortið er bæði til í vef- og app-útgáfu.

Skoðaðu nýja Endurvinnslukortið hér á vefnum eða náðu þér í Endurvinnslukorts-appið fyrir iPad og iPhone ókeypis í App Store.

Ef þú vilt vita meira, gera athugasemdir eða taka þátt í vinnu við kortin, þá skrifaðu okkur á nature@nature.is.

Tákn fyrir Endurvinnslukort Náttúrunnar: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.

Birt:
19. febrúar 2015
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Endurvinnslukort Náttúrunnar“, Náttúran.is: 19. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2014/05/28/endurvinnslukort-natturunnar/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 28. maí 2014
breytt: 4. ágúst 2015

Skilaboð: