Gert er ráð fyrir að fjárfesting í evrópskum sorporkuverum verði komin í 5 milljarða dollara (tæplega 650 milljarða ísl. kr.) árið 2016. Þetta er afleiðing af viðleitni stjórnvalda til að draga úr urðun og losun gróðurhúsalofttegunda. Á næstu árum þarf fyrirsjáanlega að leggja mikið fé í endurbætur á eldri stöðvum til að þær nái að uppfylla nýjustu kröfur um hreinsun útblásturslofts. Árið 2012 féllu til um 265 milljónir tonna af óflokkuðum heimilisúrgangi í Evrópu, en á heimsvísu var magnið nálægt 1,3 milljörðum tonna. Gert er ráð fyrir að þessi tala verði komin í 2,2 milljarða tonna árið 2025, og að þá verði árlegur kostnaður vegna úrgangsmeðhöndlunar um 375 milljarðar dollara (um 47.000 milljarðar ísl.kr.), sem er um 83% hækkun frá því sem nú er.
(Sjá frétt EDIE 27. febrúar).

Birt:
1. mars 2013
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ör vöxtur í sorpbrennslu“, Náttúran.is: 1. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/01/or-voxtur-i-sorpbrennslu/ [Skoðað:3. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: