Náttúran birtir nú fyrsta sáðalmanak ársins 2013. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur    Tími

1.   febr.  00 – 24  rót
2.   febr.  00 – 24  rót
3.   febr.  00 – 03  rót, 04 – 22 blóm
4.   febr.  05 – 10  blóm, 11 – 24 blað
5.   febr.  00 – 24  blað
6.   febr.  01 – 22  ávextir
7.   febr.  óhagstætt
8.   febr.  01 – 15  ávextir, 16 – 24 rót
9.   febr.  00 – 24  rót
10. febr.  00 – 14  rót, 15 – 24 blóm
11. febr.  00 – 10  blóm, 10 – 24 óhagstætt
12. febr.  óhagstætt
13. febr.  00 – 12  óhagstætt, 12 – 24 blað
14. febr.  00 – 24  blað
15. febr.  00 – 08  blað, 09 – 24 ávextir
16. febr.  00 – 04  ávextir, 05 – 19 blóm, 20 – 24 ávextir
17. febr.  00 – 06  ávextir, 08 – 24 rót
18. febr.  00 – 09  rót, 09 – 14 óhagstætt, 14 – 22 rót
19. febr.  00 – 10  blóm, 11 – 24 rót
20. febr.  00 – 09  rót, 09 – 24 blóm
21. febr.  00 – 05  blóm, 10 – 24 blóm
22. febr.  00 – 16  blóm, 17 – 24 blað
23. febr.  00 – 24  blað
24. febr.  00 – 08  blað, 09 – 24 ávextir
25. febr.  00 – 24  ávextir
26. febr.  00 – 09  ávextir, 09 – 19 óhagstætt, 19 – 24 ávextir
27. febr.  01 – 24  rót
28. febr.  00 – 24  rót

Sáðalmanak hvers dags birtist nú einnig á Viðburðardagatalinu hér til hægri á síðunni.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Eldhúsgarðurinn byrjar í huganum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
13. febrúar 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak febrúar 2013“, Náttúran.is: 13. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/13/sadalmanak-februar-2013/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: