Í gær var handverksmaður ársins valin úr hópi þátttakenda á Handverkshátíðinni í Hrafnagili. Kynning á Handverksmanni ársins hljómar á þessa lund:

  • Handverksmaður ársins er landnámsmaður á vettvangi þjóðlegs íslensks handverks.
  • Hann er frumkvöðull sem ber mikla virðingu fyrir viðfangsefni sína.
  • Hann er óþreytandi talsmaður þess að við varðveitum þennan merka menningararf og skilum honum óbrotnum til komandi kynslóða.
  • Hann er boðberi hugsjóna og spyr aldrei um verkalaun að kvöldi en leggur allt í sölurnar fyrir hugsjónir sínar.
  • Hann leitar þekkingar hvar sem hana er að finna.
  • Eins og aðrir hugsjónamenn hefur hann oft talað fyrir daufum eyrum.
  • Að öllum öðrum ólöstuðum hefur Handverksmaður ársins með sífelldum brýningum og hvatningu þokað Handverkshátíðinni í Eyjafjarðarsveit nær því markmiði að geta talist vettvangur fyrir sýningu og kynningu á handverki sem stenst þær faglegu kröfur um vinnubrögð, verk- og efnisþekkingu sem gera þarf.
  • Handverksmaður ársins er Guðrún Hadda Bjarnadóttir.

Á síðasta ári var útskurðarmeistarinn Ragnhildur Magnúsdóttir kosin Handverksmaður ársins á Handverkshátíðinni í Hrafnagili.

Efri myndin er af Guðrúnu Höddu við vefstólinn og sú neðri af Rönku í Kotinu, en svo er Ragnhildur nefnd. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
13. ágúst 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Handverksmaður ársins 2007“, Náttúran.is: 13. ágúst 2007 URL: http://nature.is/d/2007/08/13/handverksmaur-rsins/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: