Fréttagátt fyrir alla
Náttúran.is er óháður regnhlífarvefur og birtir skoðanir allra sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hver sem er getur sent inn frétt og tilkynnt um viðburð. Þær fréttir sem birtar eru á Náttúrunni verða að birtast undir nafni höfundar og ber höfundur einn ábyrgð á skrifum sínum.

Siðferðileg mörk
Náttúran áskilur sér rétt til að taka út fréttir og „orð í belg“ sem eru særandi, móðgandi eða geta beinlínis skaðað einhverja persónu, fyrirtæki eða stofnun. Náttúran tekur ekki afstöðu til pólitískra mála en er yfirlýstur málsvari náttúrunnar og umhverfisins.

Grænar innlendar og erlendar
Grænar íslenskar: Stefna Náttúrunnar er að koma á framfæri öllu því sem fréttnæmt getur talist á sviði náttúru- og umhverfismála á Íslandi. Þar má nefna nýsköpun á sviði vöruþróunar og þjónustu, fundir og ráðstefnur, yfirlýsingar og kærur, ferðamál og útivera, uppskeru og ræktun, sem og allt það sem tengist þeim persónum, félögum, stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast málefninu á einhvern hátt.
Grænar erlendar: Náttúran.is mun leitast við að tengja Ísland við alþjóðasamfélagið og birtir greinar um þróun umhverfismála hvaðanæva að úr heiminum.

Fréttabréf Náttúrunnar
Með skráningu á póstlista Náttúrunnar (hér t.v. á síðunni) færð þú sendan rafrænan fréttapóst vikulega, með helstu fréttum og tilboðum. Sjá nánar.

Senda frétt til Náttúrunnar.

Birt:
26. júní 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Um fréttastefnu og fréttabréf Náttúrunnar“, Náttúran.is: 26. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/02/26/um-frettastefnu-og-frettabref-natturunnar/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. febrúar 2008
breytt: 23. október 2009

Skilaboð: