Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað aðgerðateymi til að koma á átaki til að verja viðkvæma náttúru Reykjanesfólkvangs fyrir skemmdum af völdum aksturs utan vega og lagfæra þær skemmdir sem þegar hafa orðið. Yfirskrift átaksins er Á réttri leið á Reykjanesi.

Aðgerðateymið á að efla og samræma störf ýmissa aðila en í teyminu sitja fulltrúar frá umhverfisráðuneytinu, Reykjanesfólkvangi, Grindavíkurbæ, Sveitarfélaginu Vogum, lögreglunni á Suðurnesjum, Umhverfisstofnun og Landgræðslunni. Teyminu er m.a. ætlað að koma á samráði við félög áhugafólks um útivist og akstur í Reykjanesfólkvangi, lagfæra jarðvegsskemmdir eftir akstur utan vega og sjá um lokun slóða sem óheimilt er að aka.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra fór um Reykjanesfólkvang fyrir skömmu til að skoða skemmdir sem orðið hafa vegna aksturs utan vega. Þar lýstu fulltrúar heimamanna ástandinu fyrir ráðherra. Í kjölfarið var ákveðið á fundi í Sogum að hefja formlegt samstarf til að verja svæðið fyrir ágangi og frekari skemmdum.

Á meðfylgjandi slóð er hægt að skoða myndir af skemmdum af völdum aksturs utan vega í Reykjanesfólkvangi: http://sites.google.com/a/ust.is/reykjanesfolkvangur

Á myndinni lýsir Óskar Sævarsson, fulltrúi í stjórn Reykjanesfólkvangs, staðháttum fyrir Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
Birt:
25. júní 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Á réttri leið á Reykjanesi - átak gegn akstri utan vega í Reykjanesfólkvangi“, Náttúran.is: 25. júní 2009 URL: http://nature.is/d/2009/06/25/rettri-leio-reykjanesi-atak-gegn-akstri-utan-vega-/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: