Nú er talað um að innleiða ný gildi. Vistvernd í verki svarar kalli tímans með 15 tíma námskeiði fyrir leiðbeinendur dagana 30.-31. október n.k.

Á námskeiðinu læra þátttakendur listina að leiðbeina. Farið verður í gegnum helstu verkefni leiðbeinandans, s.s. að stýra fundum, kveikja áhuga, vinna saman í hóp og miðla fróðleik um leiðir til sparnaðar og vistvænni lífsstíls.

Námskeiðið veitir þeim sem áður hafa tekið þátt í visthópi réttindi til að leiðbeina á námskeiðum Vistverndar í verki. Námskeiðið er einnig upplagt til upprifjunar fyrir þá sem áður hafa tekið þátt. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Bryndís Þórisdóttir, fyrrverandi verkefnisstjóri Vistverndar í verki verða haldin sem hér segir

Föstudaginn 30. október kl. 14:00-22:00
Laugardaginn 31. október frá kl. 10:00-18:00

Ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku en Vistvernd í verki mun óska eftir framlagi frá sveitarfélagi viðkomandi þátttakenda fyrir kostnaðinum sem til fellur. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfandið vistvernd@landvernd.is fyrir fimmtudaginn 29. október.

Birt:
28. október 2009
Tilvitnun:
Sigrún Pálsdóttir „Viltu gerast leiðbeinandi Vistverndar í verki?“, Náttúran.is: 28. október 2009 URL: http://nature.is/d/2009/10/28/viltu-gerast-leiobeinandi-vistverndar-i-verki/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: