Reglugerðir eru ekki ógnun, heldur vísa þær veginn til heilbrigðara þjóðfélags og vísinda.

Í samantekt Dr. Karls Karlssonar fyrir líftæknihóp Bjarkar sem birt var í Fréttablaðinu 15. nóv. s.l. eru þau tilmæli á borð borin að styrkja beri líftækni á Íslandi með mun meira fjármagni úr vösum skattgreiðenda og með straumlínulagaðra regluverki. Þessi formúla mun hvorki þjóna þjóðfélagi okkar né vísindunum.

Ísland þarf óháða vísindastofnun
Það er óhætt að taka undir þá skoðun að æskilegt sé að styrkja rannsóknir og þróun með fjármagni opinberra eða óháðra aðila, því með óháðri fjármögnun er líklegra að öryggi og gæði verði meginhvatar vísindastarfs. En háskólar eru ekki réttur vettvangur til að sjá um áhættumat á hagnýtingu líftækni. Og ungum vísindamönnum hættir til að einblína á kosti nýrrar tækni og horfa framhjá áhættu, sem hún hefur í för með sér. Hér á landi er brýn þörf á rannsóknastofnun með þrautþjálfuðum og vel launuðum vísindamönnum, sem eru óháðir líftækniiðnaðinum og treysta má að geri óvilhallt mat á umsóknum um hagný t líftækniverkefni. Slík stofnun gæti veitt vísindalega ráðgjöf til stjórnstofnana sem bera ábyrgð á leyfisveitingum til líftæknifyrirtækja, og gæti upplýst yfirvöld um með hvaða hætti eftirlit og stjórnun áhættu á þessu sviði verði best formfest í reglugerðum. Gott dæmi um slíka stofnun er norska rannsóknastöðin í genavistfræði (GenØk).

Andstaða við reglugerðir vanhugsuð
Krafan um straumlínulaga regluverk lætur vel í eyrum margra vegna landlægrar andstöðu við reglugerðir. En minnumst þess að megin orsök fjármálakreppunnar var skortur á lagareglum og eftirliti. Fyrirtækjum mislíkar oft reglugerðir og reyna hvað þau geta að komast fram hjá þeim. Þau þurfa að skila arði af fjárfestingum og án reglugerða selja þau nýjungar áður en þær eru fullþróaðar og áður en öryggi þeirra er tryggt. Erfðabreytt matvæli eru gott dæmi. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna tekur við umsóknum þarlendra fyrirtækja sem hyggjast rækta eb-plöntur, án þess að láta fara ofan í saumana á þeim. Leyfi eru gefin út á þeim forsendum að fyrirtækin sem sækja um hafi gert nægar rannsóknir til að tryggja öryggi viðkomandi ræktunar. Í reynd stýrir iðnaðurinn sér sjálfur, - með hörmulegum afleiðingum fyrir bandarískan landbúnað, útflutning og umhverfið.

Að fjármagna fyrirheit í stað vísinda
Allt frá því að Reagan komst til valda hefur bandarískum líftæknifyrirtækjum tekist að tryggja sér gríðarlega fjármuni frá hinu opinbera á grundvelli loforðalista. Engin þessara fyrirheita hafa þó staðist. Eb-afurðir leiddu ekki til minni eiturefnanotkunar - þvert á móti jókst hún. Þær juku ekki uppskeru - og í mörgum tilvikum minnkaði hún. Hvarvetna sem eb-plöntur hafa verið ræktaðar hafa þær mengað aðra ræktun. DNA hefur borist úr leifum eb-plantna út í jarðveg og eyðilagt með því frjósemi jarðvegs og mengað grunnvatn. Eb-plöntur hafa víxlfrjóvgast við villtar plöntur og myndað þannig ofurillgresi. Skordýr hafa breyst í ofurskordýr eftir að hafa innbyrt Bt-eitrið úr eb- maís- og bómullarplöntum. Dómstólar í Bandaríkjunum hafa a.m.k. þrívegis dæmt landbúnaðarráðuneytið fyrir ófullnægjandi eftirlit með eb-ræktun, og fjöldi bænda á í málaferlum við líftæknifyrirtæki um ræktunarréttindi. Mörg sambandsríki reyna nú að draga úr tökum líftæknifyrirtækja á landbúnaðinum og kröfur neytenda leiddu til þess að Barack Obama lýsti yfir að merkja beri eb-matvæli.

Evrópa gefur rétta fordæmið
Evrópuþjóðir viðurkenna það sem Bandaríkin eru nú að átta sig á að reglugerðir eru óhjákvæmilegur þáttur í lýðræði og jafnframt virkasta tækið til að vernda alþjóðaviðskipti. ESB hefur sett ítarlegar reglur um erfðabreyttar lífverur vegna þess að varúðarreglan, sem er grunnatriði í löggjöf ESB, er álitin hin rökrétta leið til að stjórna nýrri tækni. Kröfur líftæknifyrirtækja um minna regluverk munu aldrei þagna, en vel upplýst stjórnvöld munu standast þann þrýsting. Reglugerðir eru ekki ógnun, heldur vísa þær veginn til heilbrigðara þjóðfélags - og vísinda.

Höfundur er sjálfstætt starfandi ráðgjafi.

Bygg. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
25. nóvember 2008
Uppruni:
Fréttablaðið
Tilvitnun:
Sandra B. Jónsdóttir „Björk fær slæma ráðgjöf“, Náttúran.is: 25. nóvember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/11/25/bjork-faer-slaema-raogjof/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 26. nóvember 2008

Skilaboð: