Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert, en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun.

Undanfarin ár hefur verið efnt til fjölda viðburða um allt land í tilefni dagsins, m.a. hefur umhverfisráðherra veitt einstaklingum, fyrirtækjum og grunnskólum viðurkenningarnar fyrir fyrirmyndarstarf á sviði umhverfismála. Einnig hefur fjöldi félaga, sveitarfélaga og skóla skipulagt viðburði á deginum.

Árið 2011 er ár skóga samkvæmt ákvörðun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Markmið árs skóga er að auka vitund um sjálfbæra nýtingu, verndun og þróun skóga. Í ljósi þess er dagur umhverfisins að þessu sinni tileinkaður skógum.

Erindi þessa greinar er að hvetja félög, skóla og sveitarfélög til að taka virkan þátt í degi umhverfisins, t.d. með uppákomum eða fræðslu um skóga eða önnur umhverfismál. Umhverfisráðuneytið safnar saman upplýsingum um viðburði á degi umhverfisins og mun vekja athygli á þeim. Þess vegna óskar ráðuneytið eftir að fá senda stutta lýsingu á viðburðum með tölvupósti á netfangið postur@umhverfisraduneyti.is, eigi síðar en 15. apríl.

Ljósmynd: Birki, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
21. mars 2011
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Dagur umhverfisins 2011“, Náttúran.is: 21. mars 2011 URL: http://nature.is/d/2011/03/21/dagur-umhverfisins-2011/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: