Um klukkan 17:30 í dag (21. maí 2011) tók að mælast aukinn órói með upptök í eða nálægt Grímsvötnum. Gos er nú hafið í Grímsvötnum.  Úr flugvél sem var á leið frá Akureyri til Reykjavíkur og í 18- 20000 feta hæð sást mökkur en hann sést nú allt frá Egilsstöðum og til Selfoss. Ekki er gert ráð fyrir að vatn það sem bráðna mun vegna eldsumbrotanna muni ná til byggða fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið og er þá miðað við hvernig þetta var í byrjun goss 1998.

Vísindamenn eru nú á leið í flug yfir gosstöðvarnar. Veðursjá Veðurstofu Íslands sem staðsett er við Keflavíkurflugvöll sýnir vel útbreiðslu gosmakkarins.

Ljósmynd: Gosstrókurinn séður frá útsýnisstað við Sogið um kl. 22:00 í kvöld. Einar Bergmundur.

Birt:
21. maí 2011
Höfundur:
Veðurstofan
Tilvitnun:
Veðurstofan „Gos hafið í Grímsvötnum“, Náttúran.is: 21. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/21/gos-hafidi-i-grimsvotnum/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. maí 2011

Skilaboð: