Sjálfboðasamtökin SEEDS fagna um þessar mundir fimm ára afmælinu sínu og að því tilefni verður efnt til Umhverfisráðstefnu í Iðnó þ. 16. nóv. nk. í samstarfi við Landvernd og Umhverfisstofnun.

Sjálfbærni er eitt mikilvægasta málefni líðandi stundar innan umhverfisgeirans. Sjálfbær þróun og hagræn nýting náttúruauðlinda er okkur nauðsynleg til að tryggja velferð í framtíðinni. Á ráðstefnunni verða tekin dæmi um umhverfisvæn samfélög og þátt alþjóðlegra sjálfboðaliða í umhverfismálum á Íslandi. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar mun opna ráðstefnuna og er heiðursgestur hennar Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður.

Sjá dagskrá ráðstefnunnar hér.

Sjá SEEDS hér á Grænum síðum.

Birt:
9. nóvember 2010
Tilvitnun:
Anna Lúðvíksdóttir „Umhverfisráðstefna SEEDS 2010 - Sjálfboðavinna fyrir Ísland“, Náttúran.is: 9. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/09/umhverfisadstefna-seeds-2010/ [Skoðað:9. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: