20. september – 20. október.

Haustmánuður byrjast næst jafndægrum en sólin gengur um þann tíma í vigtarmerki. Líka var þessi mánuður kallaður garðlagsmánuður því þessi þótti hentugur tími að bæta túngarða, engigarða, haga- eða skjólgarða og grannagarða ... Nú er tími að velta landi því, sem sáð skal í einhverju fræi að vori. Vatnsveitingaskurði á nú að stinga svo ekkert vatn geti staðið yfir landi á vetrum heldur að það súra vatn fái gott afrennsli. Jarðarávexti, sem menn vilja geyma niðurgrafna úti eða inni, skal nú upp taka og láta nokkuð þorrna, grafa þá síðan niður hvar frost má ei að þeim koma. Um þessa tíma fellir melur fræ, má nú safna því áður og sá strax í sendið land og breiða mold yfir, kemur upp næsta vor. Hvannafræi og kúmeni má nú líka sá þar sem menn vilja þær jurtir vaxi síðan.

Mynd: Hausfegurð náttúrunnar, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
27. september 2014
Tilvitnun:
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal „Haustmánuður genginn í garð“, Náttúran.is: 27. september 2014 URL: http://nature.is/d/2007/04/21/haustmanudur_genginn_i_gard/ [Skoðað:1. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. apríl 2007
breytt: 2. október 2014

Skilaboð: