Góðum degi á öllum árstímum er varla hægt að verja betur en með fjölskyldunni úti í náttúrunni.

Allt í kringum okkur eru óteljandi möguleikar til miserfiðra gönguferða sem allir ættu að ráða við.

Við sem erum með börn teljum okkur oft vera bundin af þeim þegar kemur að skemmtilegri útivist. Auðvitað eigum við ekki að nota þau sem afsökun fyrir sporleti okkar, heldur hvetja þau til að koma með okkur  og kenna þeim að fara út og njóta náttúrunnar á þeirra forsendum.

Við verðum því að velja gönguleiðir sem henta þeim og ef rétt er af stað farið, er líklegt að þau verði áhugasamari með að fara með okkur lengri ferðir síðar og þannig ræktum við áhuga þeirra fyrir heilnæmri útivist.

Munum eftir því að hafa fyrstu ferðirnar með smáfólkinu ekki of erfiðar. Létt ganga fyrir litla fætur í byrjun sem aðeins skilur eftir sig góðar minningar er líklegt upphaf að vaxandi áhuga á gönguferðum og veru úti í náttúrunni sem endast mun ævilangt. Með nánum og jákvæðum kynnum við landið, ölum við upp fólk sem í framtíðinni mun bera virðingu fyrir umhverfinu og gildi þess að vernda náttúruna. Síðan smá lengjum við ferðirnar eða jafnvel förum styttri göngu en seinast og setjum upp skemmtilega og helst nýja leiki þegar það á við. Við getum sett upp leiki þar sem þarf að finna visst margar plöntutegundir og jafnvel geta smádýrin heillað. Hver er fyrstur til að finna kónguló án ótta? Möguleikarnir til leikja eru óendnalegir á meðan ímyndunaraflið og gleðin eru fararstjórar okkar. Kennum þeim líka að ganga vel um og af nærgætni við umhverfið. Blóm sem slitið er upp, verður ekki öðrum til yndisauka. Allar ferðir eiga að vera skemmtun og ævintýri sem ræða má saman um eftir að heim er komið.

Að ganga um og kenna börnunum að þekkja umhverfið eru stund sem allir njóta og við fullorðna fólkið lærum sjálf svo ótal margt í leiðinni. Gönguferðir á stöðum þar sem umhverfið er fjölbreytilegt eru nefnilega endalaus uppspretta nýrrar þekkingar.

Ljósmynd: Daníel Tryggvi finnur fjaðrir í gönguferð Stokkseyrarfjöru, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
18. maí 2013
Höfundur:
Árni Tryggvason
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Árni Tryggvason „Fjölskyldan á göngu - góð ráð og hugmyndir“, Náttúran.is: 18. maí 2013 URL: http://nature.is/d/2013/05/18/fjolskyldan-gongu-god-rad-og-hugmyndir/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: