Skýringarmynd sem á að útskýra viðskiptamódel að hagrænu hvatakerfi Úrvinnslusjóðs.Hinn 1. janúar sl. komu til framkvæmda breytingar á fyrirkomulagi og framkvæmd varðandi söfnun á raf- og rafeindaúrgangi á þá vegu að umsjón þessa málaflokks var flutt til Úrvinnslusjóðs. Sem afleiðing þessa mun málaflokkur þessi framvegis vera undirorpinn m.a. úrvinnslugjaldi ásamt því að einstaka breytingar verða gerðar varðandi stjórnsýslu, þ.m.t. eftirliti, þessarar starfsemi.

Í ljósi þess að um er ræða verulegar breytingar frá núverandi framkvæmd  hélt Úrvinnslusjóður í samvinnu við Félag atvinnurekanda, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu kynningarfund mánudaginn 12. janúar 2015.

Hér má sjá fyrirlestur Ólafs Kjartanssonar, framkvæmdastjóra Úrvinnslusjóðs

Birt:
18. janúar 2015
Höfundur:
Úrvinnslusjóður
Tilvitnun:
Úrvinnslusjóður „Kynningarfundur um breytingar varðandi raf- og rafeindatækjaúrgang 12. janúar“, Náttúran.is: 18. janúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/01/18/kynningarfundur-um-breytingar-vardandi-raf-og-rafe/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: