Markmið: Hreyfing, athygli og skarpskyggni, tilbreyting.

Aldursmörk: Frá 7 ára.

Leiklýsing: Þátttakendur mega helst ekki vera færri en sjö, en eftir því sem þeim fjölgar verður leikurinn erfiðari. Hentugast er að þátttakendur séu á bilinu frá tólf til tuttugu.
Þátttakendur raða sér í hring og einn er valinn til að „ver’ann”. Sá sem „er’ann” fer fram eða svo langt frá að hann heyri ekki það sem hinir segja og á meðan ákveða þeir hver eigi að stjórna. Sá sem „er’ann” kemur og tekur sér stöðu í miðjum hringnum. Stjórnandi hringsins byrjar að hreyfa sig á einhvern hátt sem hann velur sjálfur og hinir í hópnum fylgja á eftir. Hann getur t.d. sveiflað annarri hendi. Þegar stjórnandinn sér sér fært að skipta um hreyfingu án þess að sá sem er í miðjunni taki eftir, gerir hann það og hinir í hringnum herma eftir. Stjórnandinn getur t.d. sveiflað hinni hendinni. Leikurinn er fólginn í að sá sem „er’ann” átti sig á hver það er sem stjórnar hreyfingunum. Það er á valdi þátttakenda hversu margar tilraunir hann fær eða hvort þær eru ótakmarkaðar. Þegar sá sem „er’ann” hefur áttað sig á hver stjórnandinn er, fer stjórnandinn úr hringnum og hinir velja nýjan stjórnanda. Sá sem síðast var stjórnandi „er’ann” í næsta leik.

Birt:
25. maí 2014
Tilvitnun:
Auður Sigurðardóttir, Björg Pálmadóttir, Ragnheiður Matthíasdóttir „Allir sem einn“, Náttúran.is: 25. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/25/allir-sem-einn/ [Skoðað:3. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. ágúst 2014

Skilaboð: