Markmið: Kynnast, læra nöfn, hópefli og skemmtun.

Aldursmörk: Frá 2 ára

Leiklýsing:

Vindum, vindum vefjum band
vefjum smátt sem húfuband
fyrir Lillu höfuð hneigjum
fyrir Lillu búkinn beygjum
svo skal Lilla snúa sér

Allir ganga í hring á meðan Vindum, vindum vefjum band vefjum smátt sem húfuband er sungið og hneigja höfuðið og beygja búkinn þegar sagt er fyrir um það í textanum. Loks er sungið og svo skal Lilla snúa sér. Barnið snýr sér og nú öfugt við hin börnin í hringnum. Þá er söngurinn sunginn að nýju og annað barn nefnt. Það snýr sér líka við og þannig er haldið áfram þangað til öll börnin snúa bakinu inn í hringinn. Þá er sungið Fyrir öllum höfuð hneigjum, fyrir öllum búkinn beygjum og svo skulu allir snúa sér og þá snúa allir rétt.

Birt:
24. maí 2014
Tilvitnun:
Baldvina Björk Jóhannsdóttir, Linda Rós Jóhannsdóttir „Vindum, vindum vefjum band“, Náttúran.is: 24. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/24/vindum-vindum-vefjum-band/ [Skoðað:3. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. ágúst 2014

Skilaboð: