Markmið: Söngur og leikræn tjáning

Aldursmörk: Frá 3 ára

Gögn: Engin.

Leiklýsing: Nemendur ganga, hver á eftir öðrum í hring og syngja:

Það búa litlir dvergar ….> Beygja sig niður á hækjur, eru dvergar.
Á bak við fjöllin háu > … rísa upp og teygja hendurnar upp.
Byggðu hlýja…..> Snúa inn í hringinn og mynda hús með höndunum.
Brosir þangað….> Skyggja hönd fyrir augu og brosa.
Fjöllin enduróma> Klappa saman lófunum.

Ath! Lagið er þýskt þjóðlag og endar eins og það byrjar. Hér er það eins og Engilbert Humperdink útsetti það og flestir kunna.

Það búa litlir dvergar, í björtum dal,
á bak við fjöllin háu í skógarsal.
Byggðu hlýja bæinn sinn,
brosir þangað sólin inn.
Fellin enduróma allt þeirra tal.

Birt:
14. maí 2014
Tilvitnun:
Ólafía Margrét Ólafsdóttir „Það búa litlir dvergar“, Náttúran.is: 14. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/14/thad-bua-litlir-dvergar/ [Skoðað:3. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. ágúst 2014

Skilaboð: