Boris Johnson borgarstjóri Lundúna kynnti í vikunni áform sín um að gera miðborgina að fyrsta mengunarsnauða borgarhverfi í heimi (e. Ultra Low Emission Zone) í þeim tilgangi að bæta loftgæði í borginni og stuðla að hraðari orkuskiptum í samgöngum. Ef áformin verða að veruleika mega aðeins ökutæki með lítinn sem engan útblástur aka um miðborgina á venjulegum vinnutíma. Umhverfisverndarsinnar hafa efasemdir um þessi áform, einkum ef þau verða ekki að fullu komin til framkvæmda fyrr en árið 2020. Þeir telja að grípa þurfi til aðgerða af þessu tagi án tafar.
(Sjá frétt EDIE 13. febrúar).

Birt:
16. febrúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Miðborg Lundúna án mengunar?“, Náttúran.is: 16. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/16/midborg-lunduna-mengunar/ [Skoðað:28. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: