Fundur í Árnesi þ. 17. mars kl. 14:00-17:00.

Meðal framsögumanna á fundinum eru Birgir Sigurðsson rithöfundur sem var einn þeirra sem stóðu fyrir fundinum árið 1972, Gísli Már Gíslason prófessor og formaður Þjórsárveranefndar og Helga Ögmundardóttir mannfræðingur sem hefur rannsakað bakgrunn og ástæður þess að Gnúpverjar tóku sér svo afgerandi stöðu með náttúrunni, óbyggðunum og fuglum himinsins.

Minningarbrot:

Fjörutíu ár eru nú liðin síðan barátta heimamanna í Gnúpverjahreppi fyrir verndun Þjórsárvera hófst. Þann 17. mars 1972 boðaði landgræðslunefnd Ungmennafélags Gnúpverja til almenns sveitarfundar um Þjórsárver og þá ógn sem steðjaði að þeim vegna hugmynda um risastórt miðlunarlón sem hefði sökkt verunum. Í tilefni þessa boða Vinir Þjórsárvera, Áhugahópur um verndun Þjórsárvera, Landvernd, og Náttúruverndarsamtök Íslands til fundar í félagsheimilinu Árnesi til að minnast þessa merka fundar. Skyggnst verður inn í tíðaranda á fyrri hluta áttunda áratugarins í Gnúpverjahreppi, litið yfir farinn veg og horft til framtíðar.

Fundur Gnúpverja, sem einnig var haldinn í félagsheimilinu í Árnesi, var fjölmennur og stóð fram á nótt. Á honum kom fram einhugur um að vernda bæri Þjórsárver. Þessi fundur skipti sköpum um framgang mála á þeim tíma og sennilega alla tíð þar eftir. Samþykkt var ályktun sem hefur staðist tímans tönn og til er ítarleg fundargerð. Baráttan fyrir verndun Þjórsárvera hefur staðið nær samfellt síðan og margir mikilvægir áfangasigrar unnist.

Ljósmynd: Þjórsárver, af Náttúrukorti Famtíðarlandsins.
Sjá staðsetningu Árness hér á Græna kortinu.

Birt:
14. mars 2012
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Verndun Þjórsárvera í sögulegu ljósi - Fundur í Árnesi“, Náttúran.is: 14. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/09/verndun-thjorsarvera-fundur-i-arnesi/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. mars 2012
breytt: 14. mars 2012

Skilaboð: