Búsvæði tjarnaklukku á Hálsum við Djúpavog hefur verið friðlýst. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði friðlýsinguna nýverið með samþykki sveitarstjórnar Djúpavogshrepps og landeigenda jarðarinnar Strýtu við Berufjörð. Með friðlýsingunni varð Djúpavogshreppur fyrst íslenskra sveitarfélaga til að samþykkja friðlýsingu svæðis til verndar smádýralífi. Samhliða friðlýsingunni gerði Umhverfisstofnun samning við sveitarfélagið um umsjón með hinu friðlýsta svæði.

Við þetta tilefni hrósaði umhverfisráðherra sveitarstjórn Djúpavogshrepps fyrir vandaða vinnu við gerð aðalskipulags til 2020. Taldi ráðherra að fá eða engin dæmi væru um jafn metnaðarfulla vinnu á þessu sviði af hálfu sveitarfélags hér á landi. Skipulagið gerir meðal annars ráð fyrir verndun fjölmargra annarra svæða innan sveitarfélagsins vegna landslags og náttúru, þar á meðal fuglalífs. Umhverfisráðherra sagði friðlýst svæði vera aðdráttarafl fyrir ferðamenn og að margir náttúruunnendur leituðu uppi friðlýst svæði og náttúruminjar á ferð um landið. Mörg þekkt náttúrufyrirbæri á svæðinu í kringum Djúpavog löðuðu að ferðamenn, ljósmyndara og fuglaskoðara ár hvert og sagði hún friðlýsingar styrkja ferðmennsku á svæðinu.

Tjarnaklukka er ein fárra tegunda vatnabjallna sem finnast á Íslandi og hefur hvergi orðið vart á landinu nema á Hálsum ofan við Djúpavog. Hið friðlýsta svæði er yst á nesinu sem aðskilur Hamarsfjörð og Berufjörð og nær í 160 metra hæð yfir sjó. Þar er fjöldi smátjarna af ýmsu tagi sem iða af lífi.

Sjá nánari upplýsingar um tjarnaklukku á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Sjá einnig frétt á heimasíðu Djúpavogs.

Ljósmynd: Tjarnaklukka - Agabus uliginosus, af vef Náttúrufræðistofnunar.

Birt:
15. febrúar 2011
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Eina búsvæði tjarnaklukku á landinu friðlýst“, Náttúran.is: 15. febrúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/02/15/eina-busvaedi-tjarnaklukku-landinu-fridlyst/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: