ReykjavíkurAkademían stendur fyrir tveimur málstofum um áhrif loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag.

Markmiðið er að fá gott yfirlit yfir staðreyndir og hugsanlegar afleiðingar fyrir Ísland og Norðurslóðir, þær breytingar sem orðið hafa og þær sem kunna að verða. Málstofurnar verða í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut121, 4. hæð, laugardagana 20. mars og 10. apríl, kl. 13:00 - 15:30

Laugardaginn 20. mars kl. 13:00:

Náttúran næst okkur

  • Jöklar á Íslandi - Helgi Björnsson, jöklafræðingur, prófessor HÍ
  • Lífríki sjávar og loftslagsbreytingar - Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar
  • Áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfi lands- Ingibjörg Svala Jónsdóttir, vistfræðingur, prófessor HÍ
  • Fuglar á faraldsfæti - Einar Ó Þorleifsson, náttúrufræðingur, ReykjavíkurAkademíunni
  • Loftslag og landnýting - Bjarni Diðrik Sigurðsson, vistfræðingur prófessor LbhÍ


Laugardaginn10. apríl kl. 13:00:

Hnattrænt samhengi og hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á búsetu, atvinnulíf og menningu

Meðal fyrirlesara verður Halldór Björnsson, veðurfræðingur, Veðurstofu Íslands og Björk Bjarnadóttir umhverfisþjóðháttafræðingur sem flytur erindið \342\200\234Hún heitir móðir jörð og hún er með hita\342\200\235 - um upplifanir og útskýringar frumbyggja Kanada á loftslagsbreytingum.

Birt:
16. mars 2010
Höfundur:
Einar Þorleifsson
Tilvitnun:
Einar Þorleifsson „Áhrif loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag“, Náttúran.is: 16. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/16/ahrif-loftslagsbreytinga-natturu-lifriki-og-samfel/ [Skoðað:6. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: