Miðvikudaginn 21. október verður haldinn opinn fundur í Hvammi, á Hilton Hóteli Reykjavík, undir yfirskriftinni „Sjálfbær nýting jarðhitans“. Að fundinum standa GEORG (Geothermal Research Group), iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands, ÍSOR, Orkustofnun og Samorka.

Dagskrá:

13:00 Orkuforði og endurnýjanleiki jarðhitakerfa - Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR – Íslenskra orkurannsókna

13:25 Sjálfbær nýting jarðhitakerfa - Guðni Axelsson, deildarstjóri, ÍSOR

13:50 Sjálfbær nýting á Íslandi:

  • Lághitasvæði Reykjavíkur - sjálfbær vinnsla í 80 ár - Gretar Ívarsson, jarðfræðingur, Orkuveitu Reykjavíkur
  • Svartsengi – farsæl orkuframleiðsla í 30 ár - Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri, HS Orku
  • Krafla – 30 ára barátta við náttúruöflin - Bjarni Pálsson, verkefnisstjóri, Landsvirkjun Power

15:00 Umræður

15:30 Fundarlok og kaffiveitingar

Fundarstjóri: Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku í síma 588 4430 eða með tölvupósti til the@samorka.is.

Birt:
17. október 2009
Höfundur:
Orkustofnun
Tilvitnun:
Orkustofnun „Sjálbær nýting jarðhitans“, Náttúran.is: 17. október 2009 URL: http://nature.is/d/2009/10/16/sjalbaer-nyting-jarohitans/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. október 2009
breytt: 20. október 2009

Skilaboð: