Ferðafélag Íslands efnir til fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu í dag, laugardag, kl. 14:00. Þetta verður létt ganga eftir göngustígum upp í hlíðar Esju og verður lagt upp frá bílaplaninu við Mógilsá og síðan verður boðið upp á veitingar þegar komið er aftur niður. Þegar vandi steðjar að er fátt betra en að ganga með fjölskyldunni eða í góðra vina hópi úti í íslenskri náttúru. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir að taka þátt í þessari fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu Ferðafélagsins.

Reyndir fararstjórar verða í göngunni og enginn þarf að fara lengra en hentar hverjum og einum. Göngutíminn er því alveg að vali hvers og eins, allt frá því að rölta upp í skóginn til göngu á fjallið sjálft. Stígarnir neðst upp frá bílaplaninu eru breiðir og sléttir og hverjum fullfrískum manni og börnum færir. Við hvetjum fólk til að klæða sig vel og hafa góða skó á fótum. Veitingarnar verða heitt kakó og bakkelsi og þá gefst tími til að spjalla saman áður en haldið er heim.

Fararstjóri verður Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélagsins.

Hittumst full af bjartsýni og baráttuanda við Esjurætur kl. 14.00 á morgun, laugardag.
Birt:
11. október 2008
Tilvitnun:
Ferðafélag Íslands „Fjölskyldu- og bjartsýnisganga FÍ“, Náttúran.is: 11. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/11/fjolskyldu-og-bjartsynisganga-fi/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: