Skipulagsstofnun í samstarfi við: Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsfræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu um mótun byggðar í Turninum, Smáratorgi 3, 20. hæð í Kópavogi þ. 30. apríl nk.

Skipulagsstofnun telur að full ástæða sé til að ræða stöðu skipulagsmála eins og hún er í dag og hvaða skref við getum tekið með breyttri nálgun, t.a.m. með því að setja manninn í öndvegi. Dagskráin er þéttskipuð áhugaverðum fyrirlesurum, innlendum og erlendum, sem munu m.a. fjalla um stöðuna í dag og líta til nýrra leiða hvað varðar skipulagsgerð og mótun umhverfis.

Ráðstefnugestum gefst ennfremur kostur á að taka þátt í raddtorgi (world café) og verða niðurstöður úr umræðunni verða teknar saman í 5-10 meginatriði sem talin eru að leggja þurfi áherslu á til að bæta umhverfi okkar og auka lífsgæði. Þessum atriðum verður svo komið áfram til stjórnvalda sem taka ákvarðanir við mótun byggðar.

Dagskrá:

  • 8:30 Skráning ráðstefnugesta, afhending gagna og kaffi
  • 9:00-9:05 Setning ráðstefnunnar - Stefán Thors skipulagsstjóri
  • 9:05-9:15 Ávarp - Umhverfisráðherra
  • 9:15-9:35 Norræn samstarfsverkefni um mótun byggðar og sjálfbæra þróun Hafdís Hafliðadóttir arkitekt og sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun
  • 9:35-10:45 City Design- Urban developement for Citizens method Steffen Gulmann stofnandi 11 CityDesign og aðjúnkt við Copenhagen Business School: Strategic Design Developement
  • Kaffihlé
  • 10:55-11:35 An historical approach on the notion of esthetic and the town planning - Astrid Lelarge doktorsnemi í sagnfræði og Birgir Jóhannsson arkitekt
  • 11:35-12:00 Kynning á rannsóknarverkefnum háskólanema
  • Hádegishlé
  • 13:00-14:15 Where would we like to live? -Eric Holding arkitekt, starfar með CABE í Bretlandi, John Thompson Partners og Alta
  • 14:15-14:30 Kynning á niðurstöðum úr málstofunum fimm: ,,AÐ MÓTA BYGGБ‘ sem haldnar voru í vetur með; unga fólkinu, íbúa- og félagasamtökum, verktökum og fjárfestum, skipulagsráðgjöfum og öðrum sem koma að skipulagsgerð og kjörnum fulltrúum - Málfríður K Kristiansen arkitekt og verkefnastjóri hjá Skipulagsstofnun
  • 14:30-16:55 Raddtorg – (world café), umræðuhópar á 19. hæð með þátttöku ráðstefnugesta, (5- 6 manns við hvert borð) þar sem fram fara umræður með því markmiði að ná fram niðurstöðum og skilaboðum sem komið verður áfram til stjórnvalda (kaffi og meðlæti verða á borðum) 17:00 Ráðstefnulok og hressing.

Tekið er á móti skráningu í admotabyggd@skipulagsstofnun.is og hjá Skipulagsstofnun í síma: 595-4139. Við hvetjum fólk til að skrá sig sem fyrst en lokadagur skráningar er 28. apríl.
Ráðstefnugjald er kr. 6000- / en kr. 5000- fyrir þá sem skrá sig fyrir 23. apríl. Gjald fyrir atvinnulausa og námsmenn verður kr. 2.500- /en kr. 2.000- fyrir þá sem skrá sig fyrir 23. apríl. Við skráningu þarf að koma fram hvert senda á reikninga. Afboðanir þurfa að berast fyrir 28. apríl.

Ráðstefnugestum stendur til boða einstakt tilboð í hið glæsilega hádegisverðarhlaðborð á Nítjándu, veitingarstað VeisluTurnsins, á kr. 2.200- (venjulegt verð er kr. 2.750-). Sérstök skráning er fyrir gesti í: pantanir@veisluturninn.is og skal þá tekið fram að um ráðstefnugesti sé að ræða, eða í síma 575-7502. Tekið er við pöntunum til 29. apríl.

Ráðstefnustjórar: Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og Guðríður Arnardóttir fulltrúi í bæjarstjórn Kópavogsbæjar.

Því er við að bæta að í aðdraganda ráðstefnunarinnar hélt Skipulagsstofnun málstofur AÐ MÓTA BYGGÐ, með ýmsum markhópum s.s. unga fólkinu, íbúa- og félagasamtökum, verktökum, fjárfestum, skipulagsráðgjöfum, kjörnum fulltrúum auk annarra fagstétta sem mættu koma í auknum mæli að gerð skipulags, s.s. umhverfissálfræðinga og félagsfræðinga.

Sjá ennfremur upplýsingar og fróðleik úr málstofunum á heimasíður Skipulagsstofnunar: skipulag.is AÐ MÓTA BYGGÐ.

Mynd: Gamla Kaffi Hljómalind, af vef Skipulagsstofnunar.

Birt:
27. apríl 2009
Höfundur:
Skipulagsstofnun
Uppruni:
Skipulagsstofnun
Tilvitnun:
Skipulagsstofnun „Að móta byggð...með áherslu á lífsgæði“, Náttúran.is: 27. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/27/ao-mota-byggomeo-aherslu-lifsgaeoi/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 30. apríl 2009

Skilaboð: